Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fréttalisti

18.04.2017

Sundknattleikur fyrir 16.ára og yngri sunnudaginn 23.apríl

Skipuleggjendur: Sundfélag Hafnarfjarðar í samvinnu við SSÍ Dagsetning og staður: Sunnudaginn 23. Apríl 2017 / Ásvallalaug í Hafnarfirði Tímasetning: Liða- og reglufundur: kl 8:30 Upphitun: kl 9:00 Keppni hefst: kl 9:30 ≈ 16.00 Markið mótsins: Kynna sundknattleik fyrir ungu sundfólki, þjálfurum og félögum. Efla vitund með jafnri þáttöku beggja kynja í blönduðum liðum og veita öllum tækifæri til að taka þátt. Leyfa krökkum að skemmta sér í sundíþrótt og efla liðsheild.
Nánar ...
10.04.2017

Íslandsmet og piltamet á lokadegi ÍM50

Í gær lauk Íslandsmeistaramótinu í 50m laug í Laugardalnum. Karlasveit SH setti nýtt Íslandsmet í 4x100m skriðsundi þegar þeir syntu á tímanum 3:31,10 sem var bæting á 3 ára gömlu meti upp á 38/100 úr sekúndu. Sveitina skipuðu þeir Predrag Milos, Kolbeinn Hrafnkelsson, Aron Örn Stefánsson og Ólafur Sigurðsson. Gamla metið áttu SH-ingar sjálfir. Þá setti piltasveit Ægis met í sömu grein þegar þeir Hólmsteinn Skorri Hallgrímsson, Hilmir Örn Ólafsson, Bjartur Þórhallsson og Kristján Gylfi Þórisson syntu á 3:45,89. Bættu þeir þar eigið met, sem þeir fjórir settu á ÍM50 í fyrra, um tæpar tvær sekúndur.
Nánar ...
09.04.2017

Íslandsmet hjá boðsundssveit SH

Íslandsmeistaramótið í 50m laug hélt áfram í dag en síðustu undanrásirnar fóru fram í morgun. Í gær náði Katarína Róbertsdóttir lágmarki á Evrópumeistaramót Unglinga sem fer fram í Netanya í Ísrael í júlí. Hún náði því í 100m baksundi með tímann 1:06,07.
Nánar ...
08.04.2017

Eitt meyjamet á fyrsta degi ÍM50

Íslandsmeistaramótið í 50m laug hófst í gær í Laugardalslaug. Undanrásir voru syntar um morguninn og seinnipartinn fóru svo fram úrslit. Þær greinar sem syntar voru í gær voru 50m skriðsund, 400m skriðsund, 100m bringusund, 200m baksund, 100m flugsund, 4x50m blandað fjórsund og 4x200m skriðsund. Eitt meyjamet var sett en það var Eva Margrét Falsdóttir úr ÍRB sem bætti eigið met
Nánar ...
06.04.2017

ÍM50 2017 - Bein úrslit

Þá er komið að því, ÍM50 2017 hefst í fyrramálið þegar fyrstu konurnar stinga sér til sunds í undanrásum í 50m skriðsundi. Keppnin fer fram í Laugardalslaug og eru nú 155 keppendur skráðir til leiks frá 11 félögum. Mótið er hluti af Meistaradögum RÚV og verða þau með beina útsendingu frá úrslitahluta morgundagsins. Upplýsingasíða ÍM50 2017 Linkur á bein úrslit mótsins
Nánar ...
31.03.2017

Víðistaðaskóli og Hagaskóli grunnskólameistarar 2017

Í gær fór Boðsundskeppni grunnskólanna fram í Laugardalslaug. Mótið hefur vaxið hratt milli ára en í þetta skiptið voru 64 sveitir skráðar til leiks. Í hverri sveit eru 8 sundmenn og því rúmlega 500 grunnskólanemar sem mættu til leiks. Óhætt er að segja að mikið stuð myndaðist á bakkanum en þrátt fyrir örlitlar tafir og vandræði í nýja tæknibúnaðinum gekk mótið gríðarlega
Nánar ...
29.03.2017

Boðsundskeppni grunnskóla á morgun fimmtudag 30.mars

Nú styttist í Boðsundskeppni grunnskólanna sem verður haldin á morgun fimmtudaginn 30. mars. 2017 í Laugardalslaug. Nú þegar hafa 34 skólar skráð sig til leiks sem er frábært og erum við með 528 keppendur sem eru aðeins fleiri en í fyrra! Við ætlum að hefja keppni kl 10, mæting fyrir upphitun er 9.30. Við áætlum að keppni verði lokið milli kl 11:30 – 12:00
Nánar ...
26.03.2017

Guðmundur Þorbjörn Harðarson heiðursfélagi í SSÍ

Sundþing samþykkti nú um helgina að Guðmundur Þorbjörn Harðarson yrði gerður að heiðursfélaga í Sundsambandi Íslands. Áður hafa Ásgeir Ásgeirsson forseti Íslands og Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands verið útnefndir heiðursfélagar sambandsins.
Nánar ...

 

 


Fréttasafn eftir mánuðum