Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fréttalisti

09.07.2016

Jóhanna Elín lauk keppni á NÆM með flottu sundi

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir úr SH var að koma í bakkann í 50m skriðsundi á NÆM í Tampere. Hún sigraði sinn riðilinn með tæplega sekúndu bætingu - fór á 27,22 en var skráð inn á 28,17. Jóhanna endaði í 6. sæti af ​25 keppendum.
Nánar ...
09.07.2016

Brynjólfur synti 100m baksund á NÆM

Brynjólfur Óli Karlsson úr Breiðablik synti 100m bringusund rétt í þessu á tímanum 1:01,30 og endaði tíundi. Þetta er nokkuð frá hans besta sem er 1:00,40. Brynjólfur syndir 200m baksund í fyrramálið. ​
Nánar ...
09.07.2016

Ásdís Eva synti 200m bringusund á NÆM

Ásdís Eva Ómarsdóttir synti rétt í þessu 200m bringusund á NÆM í Tampere og er morgunhlutanum þá lokið hjá Íslendingunum. Ásdís synti á 2:43,83 og endaði í 8. sæti. Tíminn er bæting upp á um 2 sekúndur sléttar í 50m lauginni​.
Nánar ...
09.07.2016

Jóhanna Elín synti 100m skriðsund á NÆM

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir úr SH synti rétt í þessu 100m skriðsund og vann sinn riðil á tímanum 1:00,04 - bæting upp á 1,25 sekúndur. Tíminn dugði í 10. sæti í greininni en því miður var hún dæmd úr leik fyrir að hreyfa sig á pallinum.
Nánar ...
09.07.2016

Fjórir keppa á NÆM um helgina

Norðurlandameistaramót Æskunnar (Nordic Age-Group Championships) fer fram núna um helgina, dagana 9-10. júlí í Tampere í Finnlandi. Fjórir íslenskir keppendur eru skráðir til leiks en það eru þau Jóhanna Elín Guðmundsdóttir úr SH, Stefanía Sigurþórsdóttir úr ÍRB, Brynjólfur Óli Karlsson úr Breiðabliki og Ásdís Eva Ómarsdóttir úr Bergensvømmerne. Þjálfari í ferðinni er Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir og fararstjóri er Emil Örn Harðarson, starfsmaður SSÍ. Jóhanna keppir í 50m skriðsundi og 100m skriðsundi, Stefanía keppir í 200m fjórsu
Nánar ...
08.07.2016

Dagur 3 á EMU

Sunneva Dögg synti í morgun 200m skriðsund á Evrópumeistarmóti unglinga, hún synti á tímanum 2.07.18, Sunneva á best 2.05.27. Til að komast í undanúrslit hefði þurft að synda á 2.02.82. Þá hafa Sunneva Dögg og Eydís Ósk lokið keppni á EMU 2016.
Nánar ...
07.07.2016

Dagur 2 á EMU 2016

Sunneva Dögg og Eydís Ósk syntu í morgun á Evrópumeistaramóti unglinga 400m skriðsund. Sunneva synti á tímanum 4.31.91 en hún á best 4.20.66. Eydís Ósk synti á tímanum 4.39.75 en hún á best 4.29.92. Sunneva Dögg syndir 200m skirðsund á morgun.
Nánar ...
06.07.2016

Dagur 1 á EMU 2016

Evrópumeistaramót unglinga hófst í morgun í Ungverjalandi. Sunneva hóf keppni í 100m skriðsundi og synti á tímanum 59.60 hennar besti tími er 59.33, en til að synda sig inn í úrslit þurfti að synda á 56.92. Eydís Ósk synti 800m skriðsund á tímanum 9.24.70 en besti tími Eydísar er 9.15.10. Þær synda báðar 400m skriðsund í fyrramálið.
Nánar ...
05.07.2016

Sunneva Dögg og Eydís Ósk á Evrópumeistaramót unglinga sem hefst á morgun.

Evrópumeistaramót unglinga hefst á morgun 6.júlí í borginni Hódmezövasásrhely í Ungverjalandi. Tvær sundkonur úr ÍRB þær Eydís Ósk Kolbeinsdóttir og Sunneva Dögg Friðriksdótti náðu lágmörkum á mótið og með þeim í för er Þuríður Einarsdóttir þjálfari og Bjarney Guðbjörnsdóttir liðstjóri. Þær keppa sem hér segir : Miðvikudagur: Sunneva 100m skriðsund Eydís Ósk 800m skirðsund Fimmtudagur : Sunneva 400m skriðsund Eydís Ósk 400m skriðsund Föstudagur: Sunneva 200m skriðsund. Nánari upplýsingar og úrslit má finna hér : http://www.ejsc2016.hu/ENG/eredmenyek-11
Nánar ...
26.06.2016

Stigastaða eftir 5. hluta á AMÍ 2016

Rétt í þessu lauk fimmta og næstsíðasta hluta AMÍ 2016 á Akranesi. Stigastaðan er svona fyrir síðasta hlutann Mótið hefst aftur með upphitun kl. 13:30 og keppni kl. 15. Áætlað er að sá hluti klárist um 19. Lokahófið byrjar svo kl. 20 í íþróttahúsinu við laugina, sem hefur hingað til verið notað sem keppendaherbergi.
Nánar ...
26.06.2016

Myndir frá AMÍ 2016

AMÍ 2016 er nú í fullum gangi og höfum við sett myndir inn frá öllum hlutum á Facebook síðu Sundsambandsins. Smelltu hér til að skoða
Nánar ...

 

 


Fréttasafn eftir mánuðum