Beint á efnisyfirlit síðunnar

Landsliðsnefnd hefur lokið vali á Smáþjóðaleikaliðinu

28.04.2017

Smáþjóðaleikarnir 2017 verða haldnir í San Marino dagana 29. maí til 3. júní. Íslendingar hafa alla tíð verið mjög sigursælir í sundhluta leikanna og meira en helmingur allra verðlauna Íslands á Smáþjóðaleikum frá upphafi koma úr sundi.  Liðið sem keppir í San Marino nú í vor er skipað 16 einstaklingum, 8 konum og 8 körlum. Það eru þau:

Aron Örn Stefánsson SH

Ágúst Júlíusson SA

Bryndís Bolladóttir Breiðablik

Bryndís Rún Hansen Óðni

Davíð Hildiberg Aðalsteinsson ÍRB

Eygló Ósk Gústafsdóttir Ægi

Hafþór Jón Sigurðsson SH

Hrafnhildur Lúthersdóttir SH

Inga Elín Cryer Ægi

Íris Ósk Hilmarsdóttir ÍRB

Karen Mist Arngeirsdóttir ÍRB

Kristinn Þórarinsson Fjölni

Kristófer Sigurðsson ÍRB

Sunneva Dögg Robertson ÍRB

Viktór Máni Vilbergsson SH

Þröstur Bjarnason ÍRB

 

Þjálfarar með liðinu verða þeir Jacky Jean Pellerin landsliðsþjálfari og Steindór Gunnarsson.  Unnur Sædís Jónsdóttir sjúkraþjálfari fer með til San Marino og Málfríður Sigurhansdóttir verður flokkstjóri sundliðsins.

Smáþjóðaleikarnir hafa verið haldnir annað hvert ár frá árinu 1985 og þar er keppt undir merkjum Ólympíunefnda níu þjóða í Evrópu, það eru Andorra, Ísland, Kýpur, Lichtenstein, Lúxemborg, Malta, Mónakó, San Marínoó og Svartfjallaland.  Ísland hefur í tvígang verið gestgjafi leikanna árið 1997 og svo árið 2015.  

Myndir með frétt

Til baka