Bikarkeppni SSÍ 2026
Bikarkeppni Sundsambands Íslands fer fram í Vatnaveröld í Reykjanesbæ, 26. september 2026. Keppt verður í 25m laug á sex brautum. Bikarkeppninni er skipt í tvær aðskildar deildir þar sem þrjú lið keppa í fyrstu deild og allt að 6 félög í annari deild. Tveir mótshlutar eru í hvorri deild. Stigakeppni er aðskilin í karlaflokki og kvennaflokki.
Boðið verður upp á hádegismat á milli hluta í Blue höllinni, rétt við laugina. Á matseðlinum er lasagne, hvítlauksbrauð og ferskt salat á 2.500 kr. Þar sem tíminn á milli hluta er stuttur reiknum við með að keppendur nýti sér hádegismatinn. Skráning þarf að berast í gegnum þjónustuvef SSÍ fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 23. september 2026.
Einnig verður boðið upp á hvíldarsvæði á milli hluta þar sem liðin geta hvílt sig. Taka þarf fram þegar matur er pantaður hvort félögin vilji nýta sér hvíldarrými, fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 23. september 2026.
2. deild: Upphitun 7:30
2. deild: Keppni 8:45-10:30
1. deild: Upphitun 9:30
1. deild: Keppni 11:00-12:45
2. deild: Upphitun 12:30
2. deild: Keppni 13:45-15:15
1. deild: Upphitun 14:30
1. deild: Keppni 16:00-17:30
Stuttur tæknifundur verður kl. 12:00 á Teams fimmtudaginn 24.9.2026.
XII. KAFLI – Reglugerðir um Bikarkeppni
a) Bikarkeppni SSÍ í sundi
1. grein
Bikarkeppni SSÍ 1. og 2. deild skal haldin ár hvert og fer hún fram í 25 metra laug.
2. grein
Liðum í Bikarkeppni SSÍ 2026 er raðað í deildir útfrá árangri í Bikarkeppni árinu á undan.
Fyrir næstu ár:
Liðum er raðað í deildir útfrá styrkleika liðanna. Samanlagður stigafjöldi liðanna ræður og eru afrek úr 25m laug frá 1. júní til 31. desember árið á undan keppni notuð til grundvallar. Þessi grein er enn í mótun og vinnur skrifstofa SSÍ að því að útfæra þetta nákvæmlega útfrá því hvað gagnagrunnur SSÍ og tölvukerfi býður uppá. Stjórn SSÍ mun gefa út í það minnsta mánuði fyrir keppni hvernig röðunin verður.
3. grein
Lið tilkynna þátttöku í Bikarkeppni SSÍ með minnst 15 daga fyrirvara. Tilkynningin er bindandi.
Skráningum í greinar skal skila tveimur sólarhringum fyrir upphaf móts og verður farið með skráningar sem trúnaðarmál þangað til að þær verða gerðar opinberar 30 mínútum fyrir hvern mótshluta.
4. grein
Í 1. deild eru 3 lið, hvert lið er með 2 keppendur í hverri einstaklingsgrein og 1 boðsundssveit í hverri boðsundsgrein. Í 2. deild eru að hámarki 6 lið, hvert lið er með 1 keppenda í hverri einstaklingsgrein og 1 boðsundssveit í hverri boðsundsgrein. Náist ekki 6 lið í 2. deild hefur stjórn SSÍ heimild til að bjóða öðrum félögum að skrá B- eða C-lið til þátttöku. Þessi lið keppa utan stigakeppni og verðlauna.
Hver keppandi má synda að hámarki 4 einstaklingsgreinar og 3 boðsund í báðum deildum. Allir keppendur skulu vera 12 ára eða eldri á árinu. Mótshlutar 1. deildar og 2. deildar eru aðskildir.
5. grein
Í 1. deild skal fjöldi keppenda af hvoru kyni vera á bilinu 8-12 og í 2. deild á bilinu 5-8 frá hverju liði. Nafnalisti fyrir keppendur skal berast SSÍ með skráningum.
Frestur til að skila inn boðsundum og gera breytingar á liðsskipan rennur út 60 mínútum fyrir upphaf hvers keppnishluta. Endanlegar skráningar verða aðgengilegar 15 mínútum síðar, eða eins fljótt og auðið er.
6. grein
Sundsamband Íslands tilkynnir dagsetningu og mótsstað með minnst tveggja mánaðar fyrirvara. Þá daga sem mótið fer fram er óheimilt að stofna til annarrar sundkeppni á vegum sambandsaðila SSÍ.
7. grein
Dagskrá mótsins er sú sama fyrir báðar deildir, tveir keppnishlutar á einum degi.
Kvenna | Laugardagur f.h. | Karla | Karla | Laugardagur e.h. | Kvenna | |
1 | 4 x 50 fjórsund | 2 | ||||
3 | 200 skriðsund | 4 | 21 | 200 flugsund | 22 | |
5 | 100 bringusund | 6 | 23 | 100 baksund | 24 | |
7 | 50 baksund | 8 | 25 | 50 bringusund | 26 | |
9 | 100 fjórsund | 10 | 27 | 200 fjórsund | 28 | |
11 | 50 skriðsund | 12 | 29 | 100 skriðsund | 30 | |
13 | 200 baksund | 14 | 31 | 50 flugsund | 32 | |
15 | 100 flugsund | 16 | 33 | 200 bringusund | 34 | |
17 | 400 fjórsund | 18 | 35 | 800 (1. deild) / 400 (2. deild) skriðsund | 36 | |
19 | 4 x 100 skriðsund | 20 | 37 | 4 x 50 skriðsund | 38 |
8. grein
Mótið er stigakeppni milli félaga. Stig verða veitt út frá sætum út frá tíma.
Stigahæsta karlalið og stigahæsta kvennalið í 1. deild hljóta sæmdarheitið BIKARMEISTARI ÍSLANDS Í SUNDI í karla- og kvennaflokkum og gullverðlaun. Liðið sem hreppir 2. sætið í 1. deild vinnur silfurverðlaun. Á sama hátt skal verðlauna tvö efstu liðin í karla og kvennaflokki í 2. deild, 1. sætið hreppir gullverðlaun og 2. sætið silfurverðlaun. Ef lið eru jöfn að stigum skulu úrslit úr boðsundum ráða sætaröðun þeirra. Ef lið eru enn jöfn skal hlutkesti ráða röð liða.
Sæti | Einstaklingsgreinar | Boðsundsgreinar |
1. | 7 stig | 14 stig |
2. | 5 stig | 10 stig |
3. | 4 stig | 8 stig |
4. | 3 stig | 6 stig |
5. | 2 stig | 4 stig |
6. | 1 stig | 2 stig |
Ógilt | 0 stig | 0 stig |
9. grein
Tæknifundi skal halda í samræmi við gildandi reglur.
Ágúst 2026
Úrslit og stigastaða Bikars 2014
Lokastaða í annarri deild 2013:
Karla:
UMSK 11.405 stig
SH B 9.426 stig
Ármann 4.054 stig
Kvenna:
ÍRB B 12.269 stig
Fjölnir 11.694 stig
UMSK 11.330 stig
SH B 9.894 stig
Ármann 9.093 stig
Lokastaða í fyrstu deild 2013:
Karla:
SH 14.721 stig - BIKARMEISTARI KARLA 2013
ÍRB 13.179 stig
Fjölnir 12.136 stig
ÍA 9.959 stig
KR 8.749 stig
Ægir 8.359 stig
Kvenna:
ÍRB 15.312 stig - BIKARMEISTARI KVENNA 2013
SH 14.793 stig
Ægir 12.937 stig
ÍA 9.950 stig
KR 3.446 stig