Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sundsamband Íslands heldur 7 alþjóða og meistaramót á hverju sundtímabili og fyrir árið 2026-2027 eru mótin sem hér segir:

  • Bikarkeppni SSÍ, 25m, 26. september 2026
  • Íslands- og unglingameistaramótið í 25m laug, 13.-15. nóvember 2026
  • Reykjavík International Games, Laugardalslaug 50m, 22.-24. janúar 2027
  • Íslands- og unglingameistaramótið í 50m laug, 9.-11. apríl 2027
  • Íslandsmót garpa, IMOC, 25m, 23.-24. apríl 2027
  • Íslandsmeistaramót aldursflokka - AMÍ, 25m, 18.-20. júní 2027
  • Sumarmeistaramót Íslands - SMÍ, 50m, 26.-27. júní 2027

Framkvæmdaraðili sér um að halda mótið í samstarfi við SSÍ, útvega aðstöðu og sjá starfsfólki fyrir hressingu á meðan á móti stendur. Sundsamband Íslands greiðir framkvæmdaraðila 20.000kr fyrir hvern mótshluta til að standa straum af kostnaði við hressingu fyrir starfsfólk. SSÍ mun ganga til samningaviðræðna við félög að lokinni ákvörðun stjórnar um úthlutun móta. Í samningi er nánar kveðið á um réttindi og skyldur samningsaðila.

Vakin er athygli á reglugerðum um einstök mót þar sem teknar eru fram lágmarkskröfur er snúa að aðstöðu mótanna. Reglugerðirnar er hægt að nálgast á heimasíðu SSÍ undir Lög og reglur 

Áhugasöm félög eru hvött til að sækja um að halda SSÍ mót með því að fylla út eyðublaðið fyrir 1. maí. Ætli félag að sækja um fleri en eitt mót þurfa þau að fylla út eyðublaðið aftur, einu sinni fyrir hvert mót.

Ef spurningar vakna er velkomið að hafa samband við Ingibjörgu, framkvæmdastjóra SSÍ, í tölvupósti á iceswim@iceswim.is eða í síma 770 6066

Hægt er að sækja um mót með því að fylla út eyðublaðið hér. Nauðsynlegt er að búa til aðgang að þjónustuvef SSÍ til að geta sótt um.