Sundsamband Íslands gefur út atburðadagatal þar sem skráðir eru inn viðburðir á vegum SSÍ, s.s. meistaramót, landsliðsverkefni, ráðstefnur og fundir. Einnig eru skráð inn mót sem haldin eru á vegum félaga.
Hægt er að sækja um að fá mótin birt á atburðadagatali SSÍ með því að fylla út umsóknareyðublað hér að neðan.
Þar þurfa að koma fram allar helstu upplýsingar um mótið:
- Nafn móts
- Tengiliður
- Tegund og flokkun móts (ABC flokkun)
- Brautarlengd og brautarfjöldi
- Upphafs- og lokadagur móts
- Lýsing sem birtist á atburðadagatali
- Hlekkur á nánari upplýsingar um mótið
- Hvaða yfirdómari mun halda utan um dómgæslu mótsins.
- Skráningarfrestur
Ef spurningar vakna er velkomið að hafa samband við Ingibjörgu, framkvæmdastjóra SSÍ, í tölvupósti á iceswim@iceswim.is eða í síma 770 6066
Hægt er að sækja um að fá mót á atburðadagatalið með því að fylla út eyðublaðið hér. Ef sækja á um mörg mót þarf að senda inn eina umsókn fyrir hvert mót. Nauðsynlegt er að búa til aðgang að þjónustuvef SSÍ til að geta sótt um.