Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fréttalisti

23.11.2013

ÍM25 í fullum gangi

Annar dagur hafinn á Íslandsmeistaramótinu í 25m laug Dagurinn hófst í 200m skriðsundi þar sem Ólafur Sigurðarson úr SH setti nýtt drengjamet þegar hann synti á tímanum 1.57,43 mínútum. Gamla metið átti hann sjálfur frá því í september síðastliðnum, 1.59,98 mínútur. Brynjólfur Óli Karlsson úr Breiðablik setti sveinamet í 50m baksundi, 30,82 sekúndur. Gamla metið var 31,58 sem Brynjólfur sjálfur setti í maí á þessu ári. Í lok hlutans var svo keppt í beinum úrslitum í 4x50m fjórsundsboðsundi í blönduðum flokki karla og kvenna, í fyrsta sinn á Íslandsmeistaramóti. Í fyrri riðlinum synti B sveit SH á nýju Íslandsmeti 1.57,49. Sveitina skipuðu þau Ásdís B. Guðnadóttir, Orri Freyr Guðmundsson, Predrag Milos og Guðný Erna Bjarnadóttir. Í seinni riðlinum kom svo A sveit Ægis fyrst í mark á tímanum 1.47,69 og bættu þar með um fjögurra mínútna gamalt met SH sveitarinnar. Sveit Ægis skipuðu Eygló Ósk Gústafsdóttir, Jakob Jóhann Sveinsson, Inga Elín Cryer og Birkir Snær Helgason. Þess ber svo að geta að í gær gleymdist að tilkynna um þrjú aldursflokkamet. Brynjólfur Óli Karlsson tvíbætti sveinametið sitt í 200m baksundi, fyrst í undanrásum – 2.23,14 og svo í úrslitum 2.19,72. Fyrir mótið var í gildi hans eigið met 2.23,68 frá því í september síðastliðnum. Kristinn Þórarinsson bætti einnig sitt eigið piltamet í 200m fjórsundi þegar hann synti á tímanum 2.00,70 í úrslitum. Gamla metið var 2:02,49 sem sett var á ÍM25 í fyrra. Í lok úrslitahlutans bætti sveit ÍRB svo meyjamet í 4x200m skriðsundi þegar þær syntu á tímanum 9.23,10. Gamla metið átti ÍRB einnig frá því 2005 en það var 9.49,19. Sveitina í gær skipuðu þær Stefanía Sigurþórsdóttir, Jóhanna Matthea Jóhannesdóttir, Aníka Mjöll Júlíusdóttir og Klaudia Malesa. Úrslitahluti dagsins hefst svo kl. 17 í dag og hvetjum við alla til að koma og hvetja sundfólkið okkar áfram í Ásvallalaug í Hafnarfirði.
Nánar ...
22.11.2013

Íslandsmeistaramótið í 25m laug hafið - 3 Íslandsmet

Íslandsmeistaramótið í 25m laug í sundi hófst í dag í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Undanrásir voru keyrðar í morgun en úrslitahluta dagsins er nýlokið. Þrjú Íslandsmet féllu en Eygló Ósk Gústafsdóttir bætti eigið met í 200m baksundi þegar hún synti til sigurs á tímanum 2.06,59. Gamla metið hennar var 2.07,10 frá því í desember 2012. Eygló var þó ekki hætt og setti einnig Íslandsmet í 200m fjórsundi er hún synti á tímanum 2.13,41 og bætti gamla metið sitt frá því í október 2012 um tæpar tvær sekúndur, 2.15,10. Í lok hlutans bætti svo boðsundssveit Fjölnis 13 ára gamalt met í 4x200m skriðsundi karla. Þeir syntu á tímanum 7.34,50 en gamla metið átti sveit SH, 7.35,34. Sveit Fjölnis skipuðu þeir: Jón Margeir Sverrisson, Kristinn Þórarinsson, Hilmar Smári Jónsson og Daníel Hannes Pálsson. Jón Margeir Sverrisson fær eftirtalinn árangur viðurkenndan: Íslandsmet S14 flokkur fatlaðra Undanrásir 400m skriðsund: 4.06,22 Undanrásir 200m flugsund: 2.17,61 Úrslit 400m skriðsund: 2:04,89 Úrslit 4x200m skriðsund (fyrsti sprettur) 200m skriðsund: 1:56,58 Þess má geta að á þessu móti eru síðustu forvöð til að ná lágmörkum á NMU og EM25 í næsta mánuði. Þeir sem hafa náð lágmörkum verða tilkynntir í lok móts. Góður dagur í lauginni á enda og við vonumst eftir öðru næstu daga.
Nánar ...
20.11.2013

ÍM 25 2013 í Ásvallalaug

Íslandsmeistaramótið í 25m laug verður haldið í Ásvallalaug í Hafnarfirði dagana 22.-24. nóvember. Allar skráningar hafa nú verið staðfestar og má nálgast keppendalista, sem og aðrar upplýsingar um mótið, á ÍM25 síðunni okkar. Mótið er sem fyrr segir haldið í Ásvallalauginni og sér SH um framkvæmd þess í samstarfi við SSÍ. Nú er mikilvægt að allir sem að mótinu koma hjálpist að við að gera mótið sem skemmtilegast. Til þess að mótið geti gengið smurt fyrir sig þörfnumst við enn fleirri starfsmanna og biðlum við því til allra félaga að hvetja
Nánar ...
19.11.2013

ÁFRAM ÍSLAND

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu spilar í kvöld einhvern mest spennandi og mikilvægasta leik sem liðið hefur spilað þegar liðið mætir Króatíu. Ávinningurinn af sigri er óumdeildur, sæti á HM í Brasilíu. Svona árangur næst ekki á einni nóttu. Svona árangur næst þegar allir leggjast á eitt, leikmennirnir, þjálfarateymið, stjórn og starfsfólk KSÍ, félögin og síðast en ekki síst stuðningsfólkið, við hin öll sem ætlum að setjast niður og horfa á leikinn, hugsa hlýlega til strákanna úti í Zagreb og upplifa hvernig liðsheildin skilar okkur áfram. En þó leikurinn vinnist ekki og liðið komist ekki áfram, hefur íslenska knattspyrnulandsliðið sýnt okkur öllum, hvar sem við stöndum í íþróttastarfinu, að það er allt hægt. Það er mikill ávinningur fólginn í því, fyrir okkur öll, þegar vel tekst til í hreyfingunni og KSÍ hefur með sínu fólki og sínum félögum haldið vel utan um uppbyggingu yngri flokka, eðlilega endurnýjun og ekki síst tókst einstaklega vel til þegar núverandi landsliðsþjálfari var ráðinn. Hann hefur leyst úr læðingi mikinn kraft, náð að samhæfa fólk úr ýmsum áttum, haldið hópnum á tánum og blásið þeim í brjóst eftirvæntingu, von og trú á starfinu. Við sem komum úr öðrum íþróttagreinum getum horft til þessa og lært. Hvetjum okkar lið áfram, fögnum með því hvernig sem úrslitin verða í kvöld. Árangurinn er óumdeildur. Áfram Ísland.
Nánar ...
01.10.2013

Sjósundgarpur 2013 - útgerðarkeppni SSÍ

Um síðustu helgi fór fram keppni milli útgerðarfélaga í sjósundi. SSÍ stóð fyrir keppninni ásamt Landhelgisgæslunni og ÍTR. Keppnin var haldin í frábærri aðstöðu ÍTR í Nauthólsvík og tókst mjög vel með dyggri aðstoð SJÓR, Sjósund- og sjóbaðsfélags Reykjavíkur. Í upphafi syntu 40 félagar úr SJÓR 260 metra þar sem þeir kepptu um hver væri með frumlegasta höfuðfatið. Í framhaldi af því kepptu 10 fulltrúar útgerðarfélaganna um titilinn Sjósundgarpur Íslands 2013. Þar varð hlutskarpastur Árni Guðnason en hann var fulltrúi Hvals í keppninni. Í öðru sæti varð Davíð Davíðsson fulltrúi HB Granda. SSÍ þakkar þátttakendum kærlega fyrir góða skemmtun og Landhelgisgæslunni og ÍTR/Reykjavíkurborg fyrir frábært samstarf. Við sjáumst að ári í Nauthólsvíkinni.
Nánar ...
01.10.2013

Uppfært Atburðadagatal

Nú hefur uppfært Atburðadagatal verið sett á síðuna. Eins og sjá má hafa orðið breytingar á útliti sem vonandi eru til þæginda, en efnislega er þetta sama dagatalið og við gáfum út staðfest af stjórn SSÍ í byrjun sundárs. Inn á dagatalið er búið að setja öll Alþjóðleg mót sem við ætlum okkur að taka þátt í, Íslands-, Bikar- og Aldursflokkamót, opin sundmót félaga og einhver önnur mót félaga sem hefur verið óskað eftir að færu inn á dagatalið. Einnig hafa verið settir inn fundir stjórnar, alþjóðasamstarf SSÍ og svo norðurlandamót í öðrum sundíþróttum en sundi. Það er gert til að brýna okkur til að sinna hlutverki okkar sem samband allra sundíþrótta. Við munum reyna að viðhalda dagatalinu eins og hægt er jafnóðum. Inn á það vantar ennþá endanlega dagsetningu á FÆR vs ÍSL og endanlega dagsetningu og staðsetningu á Sundmóti smáþjóða Evrópu.
Nánar ...
30.09.2013

Færeyjar vs Ísland frestað

Sundsamband Íslands og Sundsamband Færeyja urðu ásátt í dag um að fresta sundkeppninni Færeyjar vs Ísland sem átti að fara fram laugardaginn 5. október 2013, fram á vorið 2014. Þetta er gert að beiðni SSÍ, Keppnin verður þess í stað annaðhvort síðustu helgina í apríl eða fyrstu helgina í maí 2014. Við þökkum þeim sem hafa lagt hönd á plóg við að undirbúa keppnina. Við munum mæta sterk til leiks í vor til Færeyja.
Nánar ...
28.09.2013

Munið Nauthólsvík í dag kl. 13:00

Í dag fer fram keppni útgerðarfélaga um titilinn sjósundkappi Íslands 2013. Keppnin fer fram í Nauthólsvík kl. 14:00 en á undan synda félagar í SJÓR. Í lokin verður svo menntamálaráðherra veiddur upp úr sjónum upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Það eru Sundsamband Íslands, Landhelgisgæslan og ÍTR sem standa fyrir viðburðinum.
Nánar ...
28.09.2013

Paolo Frischnecht nýr framkvæmdastjóri LEN

Portúgalinn Paolo Frischnecht hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri LEN. Þetta var tilkynnt á ársþingi LEN nú rétt í þessu. Hann tekur við af Laszlo Szakadati i sem lét af störfum fyrr á þessu ári. Paolo var formaður portúgalska sundíþróttasambandsins í nokkur ár og hefur setið í stjórn LEN og FINA undanfarin kjörtímabil. Hann er fyrrum sundmaður og þekkir vel til í sundheiminum. SSÍ væntir mikils af samstarfi við Paolo, en við höfum fundið fyrir því hversu mikilvægt er fyrir SSÍ að vera í góðu sambandi við LEN.
Nánar ...
27.09.2013

Eistland orðinn fullgildur meðlimur í NSF

Eistland varð áðan fullgildur meðlimur í NSF, Norræna sundsambandinu. Þetta var samþykkt á aukaþingi NSF í Edinborg í dag. Fram til þessa hefur Eistland verið aukameðlimur í sambandinu, en kemur nú inn með fulla ábyrgð og skyldur. Þá eru NSF löndin orðin 7.
Nánar ...
26.09.2013

Sjósundgarpur ársins 2013 - útgerðirnar keppa á laugardaginn

Sjósundkeppni fer fram í Nauthólsvík laugardaginn 28.9.2013 klukkan eitt. Þar keppa útgerðarfyrirtækin um titilinn „Sjósundgarpur Íslands 2013“. Keppnin er samstarfsverkefni Sundsambands Íslands, Landhelgisgæslunnar og ÍTR. Keppnin fer þannig fram að keppendur (fulltrúar útgerðarfyrirtækja) stinga sér til sund frá varðskipinu Baldri, sem siglt verður inn í Nauthólsvíkina, og synda í land en endamarkið er á sandströndinni í Nauthólsvík við pottinn. Vegalengdin sem synd er 100 metrar. Dagskrá: Kl. 13.00 synda meðlimir Sjór (Sjósund- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur), sem er aðildarfélag að Sundsambandi Íslands, 260 metra vegalengd. Veitt verða verðlaun fyrir skrautlegasta höfuðfatið. Kl. 14.00 hefst keppni milli útgerðarfélaga þar sem synt verður frá varðskipinu Baldri í land. Sigurvegari er „Sjósundgarpur Íslands 2013“. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar fylgja sundmönnum eftir á gúmmíbátum og er kafari tilbúinn til taks. Kl. 15.00 verður Menntamálaráðherra hent í sjóinn og sýnir áhöfn þyrlunnar nýstárlega björgun þar sem viðkomandi er veiddur upp úr sjónum með þar til gerðu neti. Markmiðið er að vekja athygli á fjölbreyttu starfi Sundsambands Íslands, öryggi sjómanna og mikilvægi þess að kunna að synda. En afhverju stendur SSÍ fyrir sjósundkeppni útgerða á laugardaginn? Það er mikilvægt að kynna sund og minna á hversu mikilvægt það er fyrir Íslendinga að kunna að synda og bjarga sér. Að auki SSÍ er að vinna að því að koma upp Lífbjörgunardeild innan sambandsins að Evrópskri fyrirmynd og við erum að gera okkur gildandi í norrænu samstarfi um Lífbjörg og verðum vonandi meðlimir í Evrópusamtökunum um Lífbjörg fyrir árslok. Landhelgisgæslan er að kynna nýjungar í björgun úr sjó og ÍTR er að vekja athygli á frábærri aðstöðu sem rekin er í Nauthólsvík. Framundan hjá SSÍ er árleg keppni milli Íslands og Færeyja fer fram í Færeyjum laugardaginn 5. október og sömu helgi heldur SSÍ í samvinnu við Sf Ægi Norðurlandameistaramót garpa, í Laugardalslaug. Undirbúningur fyrir Íslandsmeistaramót, Evrópumeistaramót og Norðurlandameistaramót í stuttu brautinni (25m) í nóvember og desember er á fullu og auðvitað erum við alltaf að búa okkur undir stóru mótin, EM, HM, Smáþjóðaleika og Ólympíuleika. Í maí tekur Ísland við forsæti í Norræna sundsambandinu (Ísland, Færeyjar, Noregur, Svíþjóð, Finnland og Danmörk) og við höfum í samstarfi við norrænu vini okkar mannað tvær nefndir LEN Evrópska sundsambandsins, sundtækninefndina og garpanefndina. SSÍ er í stöðugri þróun og undir sambandið heyra eftirtaldar íþróttagreinar: Keppnissund, garpasund, sundknattleikur, víðavatnssund, dýfingar og samhæfð sundfimi þannig að verkefnin eru ærin. Að auki höfum við í samstarfi við HÍ látið útbúa námsefni fyrir þjálfara sem hægt er að sækja á netið. Það þýðir að þjálfari sem ætlar að sækja sér réttindi getur tekið bóklega hluta ÍSÍ og SSÍ á netinu og kemu einungis 2 helgar í verklega kennslu í stað 12 áður.
Nánar ...

 

 


Fréttasafn eftir mánuðum