Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fréttalisti

01.08.2013

"...engin leið önnur en upp" Hrafnhildur í milliriðla á HM50

Hrafnhildur Lúthersdóttir synti 200 metra bringusund núna rétt áðan á 2:28,12 og lenti í 16 sæti af 39 keppendum í greininni. Hún var skráð með 18 besta tímann fyrir svo þetta var góð niðurstaða. Íslandsmetið hennar er 2:27,11. Hrafnhildur syndir því í milliriðlum í kvöld og keppir að því að ná inn í úrslitasundið. Hún var að vonum sátt við niðurstöðuna, "Þegar maður er í 16 sæti er engin leið önnur en upp" sagði hún aðspurð um áætlun fyrir kvöldið. Hrafnhildur hélt löngum og kraftmiklum tökum allt sundið og bætti í á seinni hlutanum. Við erum því bjartsýn fyrir kvöldið hér í Barcelona.
Nánar ...
01.08.2013

"Þetta verður fróðlegt og skemmtilegt"

Þá er fimmti keppnisdagurinn að hefjast hér á HM50 í Barcelona. Veðrið leikur við okkur 24°C hiti örlítill vinndur og heiðskýrt. En veðrið og sólin eru okkur ekki ofarlega í huga, í dag synda þau Hrafnhildur og Anton Sveinn 200 metra bringusund. Hrafnhildur syndir í 3 grein, 4 riðli á 7 braut og er skráð inn á 2:27,11 sem er Íslandsmetið hennar frá því í fyrra. Hún er með 18 besta tímann af 39 keppendum. Anton Sveinn syndir í 4 grein, 2 riðli á 1 braut. Hann er skráður inn á tímanum 2:16,97 sem er tími frá því á Smáþjóðaleikunum í vor. Anton á 40 besta tímann af 43 keppendum. Íslandsmetið í greininni er 2:12,39 en það á Jakob Jóhann Sveinsson frá því á HM í Róm 2009. Í samtali sagði Jacky Pellerin landsliðsþjálfari að þessi sund yrðu bæði fróðleg og skemmtileg.
Nánar ...
31.07.2013

Leiðinda misskilningur og mistök

Eins og fram kom í morgun þá náði Ingibjörg Kristín Jónsdóttir 17 sæti í 50 metra baksundi. Finnsk stúlka synti á nákvæmlega sama tíma, þannig að í raun hefði átt að fara fram umsund um hvor þeirra væri fyrr í röðinni ef einhver skráir sig úr undanúrslitum. Fyrir einstaka óheppni heyrði íslenska liðið aldrei tilkynningu um að hafa samband við keppnisstjórn. En það sem verra er að bæði liðstjóri íslenska liðsins og þjálfari liðsins reyndu að eigin frumkvæði að ná sambandi við keppnisstjórnina en var vísað frá af öryggisvörðum. Á meðan var finnski liðsstjórinn að ganga frá því að finnski keppnandi yrði fyrstur inn ef til kæmi úrskráning. Það var svo ekki fyrr eftir að mótshlutanum lauk að í ljós kom hvernig í pottinn var búið. Við höfum því sett fram formlega kvörtun til FINA um framkvæmdina og vonumst til að vinnubrögðin breytist og lagist. Við sitjum uppi með að Ingibjörg á ekki að synda, nema einhver annar keppandi ákveði á síðustu stundu að mæta ekki til keppni. Því miður, en við bítum í skjaldarrendur og höldum áfram á jákvæðum nótum í anda þess sem kemur fram á facebooksíðu Íslenska Landsliðsins í sundi. "Fjórði keppnisdagurinn og loksins stakk Ingibjörg sér til sunds. Hún synti 50m baksund og fór á 28.62 sem er glæsilegt nýtt Íslandsmet! Hún bætti metið um 37 hundruðustu úr sekúndu sem er töluvert fyrir 50m, og þar sem hún setti hitt metið nú á ÍM50 í apríl (28.99). Endaði hún í 17. sæti af 51 ásamt annarri stelpu frá Finnlandi. Þýðir það að ef einhver skráir sig úr greininni myndi svokallað swim-off fara fram um hvor þeirra ætti að fara í undanúrslit. Eftir að hafa beðið í þó nokkurn tíma kom í ljós að Ingibjörg átti að synda swim-off en vegna mistaka og misskilnings fékk hún ekki skilaboðin og finnska stelpan fékk að synda í undanúrslitunum. Þetta er auðvitað mjög leiðinlegt og allir mjög svekktir yfir þessu en því verður ekki breytt. Mistökin gerast og við höldum sterk áfram. Á morgun eru Hrafnhildur og Anton bæði að keppa í 200m bringusundi."
Nánar ...
31.07.2013

Ingibjörg með nýtt Íslandsmet í 50 metra baksundi

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir setti rétt í þessu nýtt Íslandsmet í 50 metra baksundi á HM50 í Barcelona. Hún synti greinina á 28,62 sekúndum sem er 27/100 bæting frá fyrra meti sem var 28,99 sekúndur. Hún átti það met sjálf, setti það á ÍM50 nú í apríl. Hún lenti í 17 sæti í greininni af 53 keppendum, en 16 hröðustu fara í undanúrslit. Jacky Pellerin landsliðsþjálfari sagði að sundið hennar hefði verið mjög gott, frábær byrjun og gott úthald. Sjálf var Ingibjörg nokkuð ánægð en fannst hún hafa getað gert betur í endann. Engu að síður gott sund hjá Ingibjörgu á nýju Íslandsmeti. Á facebooksíðu SSÍ er hægt að finna stutt viðtal við Ingibjörgu.
Nánar ...
30.07.2013

Árangurinn í samræmi við undirbúning

Að sögn Jacky Pellerin landsliðsþjálfara er árangur keppendana á HM50 fram til þessa í samræmi við þann undirbúning sem hefur farið fram. Anton fann sig vel í 400 metra skriðsundinu í upphafi og á eftir að synda 200 metra bringusund og auðvitað 400 metra fjórsund. Við eigum eftir að sjá hvað þessi tími í 800 metra skriðsundi gefur honum í sæti. Eygló er fyrst og fremst að stefna á góðan árangur í 200 metra baksundi sem fer fram á föstudag, en hún er nú þegar búin að synda þrjár greinar í beit á þremur dögum. Hrafnhildur er einnig mjög góð 200 metra bringusundkona, hún átti ágætt 100 metra bringusund í gær og syndir 200 metrana á morgun. Hrafnhildur á svo 50 metra bringusund á laugardag. Ingibjörg Kristín Jónsdóttir er sú eina af íslensku keppendunum sem hefur ekki stungið sér til keppni ennþá hér í Barcelona. Jacky segir hana vera í góðu formi og vel einbeitta þannig að við búumst við góðum árangri hjá henni á morgun í 50 metra baksundi og á föstudag í 50 metra skriðsundi. Öllum íslensku keppendunum hér á HM líður vel og þau gæta vel að sér í hvíld og matarræði. Unnur Sædís sjúkraþjálfari hefur fyrst og fremst verið í að mýkja vöðva og nudda.
Nánar ...
30.07.2013

"Ég læt þetta ekki pirra mig"

Anton Sveinn McKee lauk 800 metra skriðsundi á tímanum 8:08,7 en Íslandsmetið hans í greininni er 8:08,09. Anton var ekki alveg sáttur þegar hann kom upp úr, "ég byrjaði vel og leið vel í lauginni en svo þyngdist þetta" sagði hann. "En ég læt þetta ekkert pirra mig". Anton á eftir að synda tvær greinar hér á mótinu, 200 metra bringusund á fimmtudag og svo 400 metra fjórsund á sunnudag nk.
Nánar ...
30.07.2013

Eygló Ósk 34. í 200 metra skriðsundi

Eygló Ósk Gústafsdóttir varð í 34. sæti af 45 keppendum þegar hún kom í mark í 200 metra skriðsundi á tímanum 2:04,66. Íslandsmetið hennar í greininni er 2:02,44 frá því á Smáþjóðaleikunum.
Nánar ...
29.07.2013

Eygló Ósk og Anton Sveinn keppa á morgun.

Þá hafa Íslendingarnir lokið við keppni dagsins. Hrafnhildur og Eygló geta báðar unað vel við sinn árangur í dag, þó ný met hafi ekki litið dagsins ljós að þessu sinni. Þeim leið vel í lauginni og syntu vel. Á morgun keppa þau Eygló Ósk í 200 metra skriðsundi og Anton Sveinn í 800 metra skriðsundi. Íslandsmetin í þessum greinum eru bæði frá þessu ári, Eygló setti met í 200 metra skriðsundi á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg í júní og Anton Sveinn setti met í 800 metra skriðsundi með millitíma þegar hann synti 1500 metra skriðsund á ÍM50 í apríl sl.
Nánar ...
29.07.2013

Hrafnhildur varð 30. í 100 metra bringusundi

Hrafnhildur varð 30. þegar hún lauk keppni í 100 metra bringusundi nú í morgun. Tíminn hennar var 1:09,75. Íslandsmetið hennar er 1:09,48 frá því í apríl síðasliðnum. Hrafnhildur var skráð með 32. besta tímann í upphafi keppni. Meilutyte stúlkan frá Litháen, sem kom öllum á óvart á ÓL í London, setti mótsmet í síðasta riðlinum þegar hún synti á 1:04,52, en hún var fyrirfram skráð með besta tímann í greininni. Síðasti tími inn í undanúrslit var 1:08,36.
Nánar ...
29.07.2013

Eygló Ósk í 20. sæti í 100 metra baksundi

Eygló Ósk Gústafsdóttir varð 20. í 100 metra baksundi á HM50 í Barcelona en var skráð inn í keppnina með 22 besta tímann. Hún synti á tímanum 1:01,74, en síðasti tíminn inn í undanúrslit var 1:01,25. Íslandsmet Eyglóar í greininni er 1:01,08.
Nánar ...
29.07.2013

Eygló og Hrafnhildur í góðum gír

Eygló Ósk Gústafsdóttir og Hrafnhildur Lúthersdóttir eru nú að búa sig undir keppni dagsins. Eygló er að fara í 100 metra baksund og Hrafnhildur í 100 metra bringusund. Þær eru í góðum gír eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Íslandsmetin í greinunum eru: 100m baksund 1:01,08 sem Eygló á sjálf frá því á þessu ári og 100m bringusund 1:09,48 sem Hrafnhildur á frá því á ÍM50 á þessu ári
Nánar ...
28.07.2013

Fín byrjun, Anton Sveinn með Íslandsmet

Anton Sveinn McKee var rétt í þessu að setja nýtt Íslandsmet í 400 metra skriðsundi karla hér á Heimsmeistaramótinu. Hann syndi greinina á 3:54,67, bætti metið sitt um 1,98 sekúndu og varð þriðji í sínum riðli. Að lokum varð hann 27. í greininni en hann var skráður inn með 35. besta tímann. Gamla metið átti hann sjálfur frá því á Smáþjóðalekinum í Lúxemborg nú í júní en það var 3:56,65. Fín byrjun hjá íslenska liðinu í Barcelona. Eygló Ósk gekki ekki eins vel hún synti 200 metra fjórsund á 2:18,18 sem er um þremur og hálfri sekúndu frá Íslandsmeti hennar. Eygló fann sig ekki eins vel í lauginni og Anton og hún endaði í 33 sæti, en var skráð inn með 29 besta tímann í greininni. Á morgun synda þær stöllur Eygló Ósk 100 metra baksund og Hrafnhildur Lúthersdóttir 100 metra bringusund. Við hlökkum til, vitum að Eygló á töluvert inni og Hrafnhildur er í fantaformi.
Nánar ...

 

 


Fréttasafn eftir mánuðum