Sumarmeistaramót Íslands - Icelandic Summer Championship 2026

Ásvallalaug | 27.-28. júní 2026
Sumarmeistaramót Íslands fer fram 27.-28. júní nk. í Ásvallalaug þar sem keppt verður í unglingaflokki og fullorðinsflokki. Skráningarfrestur er til og með 18. júní 2026 og skulu skráningar sendast rafrænt í gegnum þjónustuvef SSÍ
Allar nánari upplýsingar má nálgast í upplýsingaskjalinu hér að neðan.
Lokahóf á sunnudeginum
Sundfélag Hafnarfjarðar verður með lokahóf að móti loknu sem hefst um 30-45 mínútum eftir að keppni lýkur. Lokahófið verður í lauginni og verður boðið uppá grillaða hamborgara og allt sem fylgir. Verð er 4.500 kr á mann og er skráningarfrestur til og með 18. júní 2026. Skráningum skal skila til sh@sh.is og mikilvægt að taka fram óþol og ofnæmi við skráningu.
Úrslit / dagskrá
Gagnvirkt starfsmannaskjal SMÍ 2026