Sundsamband Íslands heldur 7 alþjóða og meistaramót á sundtímabilinu 2025-2026 og eru sem hér segir:
- Bikarkeppni SSÍ, 25m, 27. september 2025
- Íslands- og unglingameistaramótið í 25m laug, 7.-9. nóvember 2025 (verður haldið í Laugardalslaug í tengslum við Norðurlandameistaramótið)
- Reykjavík International Games, Laugardalslaug 50m, 23.-25. janúar 2026
- Íslands- og unglingameistaramótið í 50m laug, 27.-29. mars 2026
- Íslandsmót garpa, IMOC, 25m, 24.-25. apríl 2026
- Íslandsmeistaramót aldursflokka - AMÍ, 25m, 19.-21. júní 2026
- Sumarmeistaramót Íslands - SMÍ, 50m, 27.-28. júní 2026
Framkvæmdaraðili sér um að halda mótið í samstarfi við SSÍ, útvega aðstöðu og sjá starfsfólki fyrir hressingu á meðan á móti stendur.Sundsamband Íslands greiðir framkvæmdaraðila 20.000kr fyrir hvern mótshluta til að standa straum af kostnaði við hressingu fyrir starfsfólk.SSÍ mun ganga til samningaviðræðna við félög að lokinni ákvörðun stjórnar um úthlutun móta. Í samningi er nánar kveðið á um réttindi og skyldur samningsaðila.
Vakin er athygli á reglugerðum um einstök mót þar sem teknar eru fram lágmarkskröfur er snúa að aðstöðu mótanna. Reglugerðirnar er hægt að nálgast á heimasíðu SSÍ undir Lög og reglur
Áhugasöm félög eru hvött til að sækja um að halda SSÍ mót með því að fylla út eyðublaðið fyrir 19. júní 2025. Ætli félag að sækja um fleri en eitt mót þurfa þau að fylla út eyðublaðið aftur, einu sinni fyrir hvert mót.
Ef spurningar vakna er velkomið að hafa samband við Ingibjörgu, framkvæmdastjóra SSÍ, í tölvupósti á iceswim@iceswim.is eða í síma 770 6066
Hægt er að sækja um mót með því að fylla út eyðublaðið hér.