Fréttalisti
Bikarkeppni SSÍ nú um helgina
Michael Phelps settur í sex mánaða bann
Mest verðlaunaði sundkappi allra tíma, Michael Phelps, hefur verið settur í sex mánaða keppnisbann af Bandaríska sundsambandinuAtburðadagatal 2014-2015
Í morgun gáfum við út atburðadagatal fyrir sundárið 2014-2015.
Atburðadagatalið er virkt skjal og getur því verið uppfært hvenær sem þurfa þykir og því má búast við að eitthvað bætist við. Það verður þó alltaf auglýst skilmerkilega.
Þau mót sem SSÍ heldur árinu eru:Breiðablik óskar eftir þjálfara í sundskóla félagsins
Sunddeild Breiðabliks auglýsir eftir þjálfara til að kenna hjá félaginu veturinn 2014-2015.
Starfssvið:
Kennsla í Sundskóla deildarinnar sem ætlaður er fyrir 4-6 ára börn.
Kennsla í Salalaug og Sundlaug Kópavogs frá kl. 16:00-19:00 2-4 daga vikunnar.
Hæfniskröfur:
Reynsla af sundi og þjálfun.
Reynsla við að vinna með ungum börnum.
Stúdentspróf er skilyrði en sérhæfing í sundþjálfun og menntun í íþróttafræði er kostur.
Viðkomandi verður að geta unnið með börnum, vera þolinmóður, stundvís, heilsuhraustur og geta gefið af sér.
Nánari upplýsingar veitir Arnar Felix Einarsson í síma 867-0759. Umsókn með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skila á netfangið arnarfe@gmail.com fyrir 20. september næstkomandi. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Sunddeild Breiðabliks er eitt af fyrirmyndarfélögum ÍSÍ og fylgir stöðlum þar að lútandi. Þjálfun og kennsla fer fram á tveimur stöðum, í Salalaug og Sundlaug Kópavogs á Kársnesi. Nánar upplýsingar um sunddeildina er að finna á www.breidablik.is/sund.
Sunddeild Tindastólls óskar eftir þjálfara
Sunddeild Tindastóls á Sauðárkróki leitar að þjálfara/þjálfurum fyrir
alla aldurshópa fyrir komandi sundtímabil (sept-júní). Um er að ræða 2
aldurshópa (2.-3. Bekkur) og (4.-10.bekkur). Æfingar hafa verið tvisvar
í viku hjá yngri hópnum og þrisvar hjá elsta hópnum. Starfið telst vera
35 % starf og getur hentað vel með annarri vinnu sem og skóla. Höfum
Líka áhuga að fá þjálfara til okkar 1-2 i mánuði til að þjálfa, markmið
og fl.
Gerð er krafa um :
- Reynsla af sundíþróttinni
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Frumkvæði, jákvæðni
- Viðkomandi þarf að eiga auðvelt með samskipti við börn og unglinga og
vera þeim góð fyrirmynd.
Góð laun getum við boðið.
Erum með öfluga stjórn, gerum margt á sundtímabilinu, leitum eftir
góðum þjálfara/þjálfurum sem hefur áhuga að starfa hjá okkur.
Áhugasamir aðilar hafi samband við formann sunddeildar Tindastóls,
Þorgerði Evu Þórhallsdóttir, í síma 856-1812Flottur hópur á leið í æfingabúðir
Laugarvarðapróf
Sundfélagið Ægir auglýsir eftir þjálfara
Sundfélagið Ægir óskar eftir að ráða sundþjálfara til að starfa með yngri hópum félagsins. Um er að ræða hlutastarf ásamt þátttöku í mótum og hentar starfið einkar vel námsmönnum. Í boði er uppbyggjandi, starf, þjálfarnámskeið og sundvarðanámskeið. Laun eru samkomulagsatriði. Umsóknir sendist á aegir@aegir.is. Nánari upplýsingar veitir Gunnar Valur Sveinsson, formaður Sundfélagsins Ægis í gegnum póstfangið gvsveinsson@gmail.com
Þjálfaranámskeið 6. september kl 9.
Þjálfaranámskeið á vegum SSÍ verður haldið 6. September n.k. frá kl 09.00- 17.00 í sal hjá ÍSÍ eða í Pálsstofu, fer eftir fjölda.
Þetta námskeið hentar þeim sem vilja mæta á námskeið þar sem farið verður í TIES námsefnið á íslensku, en er einnig í boði fyrir þá sem hafa hug á því að koma á TIES námskeiðið 31. okt – 1. nóv n.k.
Námskeiðið í september er bóklegt og farið yfir grunninn í sundþjálfun.
Námskeiðið í október er bæði bóklegt og verklegt (meira verklegt)þar verður einnig upprifjun úr grunninum og hvernig hægt er að nota fræðin í sundlauginni.
Kostnaður er 10.000kr fyrir námskeiðið í september.
Nánari upplýsingar má finna hér: http://www.sundsamband.is/utbreidsla/thjalfaramenntun-ssi/
Kennari verður Brian Marshalls.
Vinsamlegast sendið inn skráningar til sundsamband@sundsamband.is fyrir fimmtudaginn 4. September.
Tvö met hjá Hrafnhildi í dag
Uppfærð frétt - Tvö met í dag. Hrafnhildur Lúthersdóttir slær ekkert af en nú rétt í þessu synti hún undir Íslandsmetinu í 50m bringusundi í 25m laug þegar hún kom þriðja í mark á tímanum 30,67 í úrslitum í greininni á Heimsbikarnum í Doha í Qatar. Hún synti undanrásir í morgun og fór þar á 31,27 sem skilaði henni í fjórða sætið í úrslitin.
Gamla metið átti hún sjálf frá því 2010 í Dubai, 30,82.
Hún syndir svo 200m bringusund í beinum úrslitum eftir stutta stund og lýkur þar með keppni á mótinu.Marcus Röttger á fundi með stjórn SSÍ
Marcus Röttger frá Myrtha Pools kom á fund stjórnar SSí nú í kvöld og fór yfir mörg nauðsynleg atriði sem þarf að hafa í huga við uppbyggingu aðstöðu fyrir sundíþróttir. Á fundinum voru einnig umboðsmenn Myrtha Pools á Íslandi þeir Ágúst Óskarsson og Heiðar Ágústsson. Einnig voru á fundinum Hildur Karen Aðalsteinsdóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri SSÍ og Gústaf Adólf Hjaltason úr Mannvirkjanefnd SSÍ.
Það er von stjórnar SSÍ að þessi heimsókn Marcusar verði til setja áætlanir um uppbyggingu sundíþróttaaðstöðu á Íslandi í raunhæft far.- Fyrri síða
- 1
- ...
- 121
- 122
- 123
- ...
- 143