Beint á efnisyfirlit síðunnar

IMOC 2019 - upplýsingar

16.04.2019

Íslandsmótið í garpasundi (IMOC) verður haldið í Laugardagslaug í Reykjavík dagana 3. og 4. maí. Keppt er í 25m laug.

Skráningarfrestur rennur út miðvikudaginn 24. apríl 2019. Þeir sem ekki hafa yfir að ráða Splash forriti skulu skila skráningum inn í Excel formi. Hægt verður að leiðrétta skráningar fram til kl.12 að hádegi þriðjudaginn 30.apríl og þá eru einnig síðustu forvöð að ganga frá greiðslu skráningargjalda. Berist greiðsla ekki fyrir þann tíma verður skráningu eytt.

Eigi einstaklingur ekki ekki gildan tíma í grein sem hann vill synda á mótinu má hann skrá sig á áætluðum tíma, sem t.d. hefur náðst á æfingu. Þetta er gert til að auðvelda gerð tímaáætlunar og jafna riðlana á mótinu. Gott er að miða við tíma sem synt var á innan síðustu þriggja ára. Öllum er þó ennþá frjálst að skrá sig án tíma (No Time, NT).

Endanlegur keppendalisti fyrir mótið verður svo gefinn út fimmtudaginn 2. maí 2019

Skráningar sendast með tölvupósti á skraning@iceswim.is (Emil - s: 659-1300)

Greiðslur:

Fyrsta grein einstaklings - kr. 3200,-
Önnur grein einstaklings - kr. 1700,-
Þriðja grein einstaklings - kr. 1700,-
Allar greinar eftir það eru keppendum að kostnaðarlausu
*Skráning einstaklings í boðsund en enga aðra einstaklingsgrein - kr. 3200,-

Greiðsluupplýsingar:

Rkn: 513-26-1327
Kt: 640269-2359
Munið að senda setja kennitölu keppanda í Skýringu og senda staðfestingu á skraning@iceswim.is

Nánari upplýsingar birtast þegar nær dregur.
http://www.sundsamband.is/sundithrottir/sundmot/imoc

Lokahóf verður haldið á laugardagskvöldið 4. maí í sal Café Easy í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Stefnt er að því að húsið muni opna kl. 19.00. Matseðill og verð verður auglýst síðar en skráning á lokahófið fer fram í tölvupósti skraning@iceswim.is

Til baka