Beint á efnisyfirlit síðunnar

Æfingabúðir á Tenerife

27.03.2018

SSÍ fékk á dögunum styrk sem á að nota í undirbúning að YOG sem haldið verður í Buenos Aires í október.

Landsliðsnefnd og stjórn SSÍ hafa samþykkt að nota styrkinn til að fara í æfingabúðir til Tenerife í eina viku frá  29/5 -5/6 2018.

Það var einnig samþykkt að þeir sem hafa náð lágmörkum á NÆM eða EMU fara með í þessar æfingabúðir. 

Þeir sem ná lágmörkum á NÆM, EMU eða á YOG á ÍM50 2018  fara einnig með með.

Þjálfari í æfingabúðunum verður Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir, hún verður einnig þjálfari á YOG í október, fararstjóri og aðstoðarþjáfari á Tenerife verður Bjarney Guðbjörnsdóttir.

SSÍ fékk úthlutað 4 sætum á YOG 2018 fyrir tvær stúlkur og tvo pilta.

 

Þeir sem hafa náð A-lágmarki á YOG 2018

  • Snæfríður Sól Jórunnardóttir 

    Þeir sem hafa náð B-lágmarki á YOG 2018

  • Jóhanna Elín Guðmundsdóttir
  • Karen Mist Arngeirsdóttir
  • Sunna Svanlaug Vilhjálmsdóttir
  • Brynjólfur Óli Karlsson
  • Katarína Róbertsdóttir

    Þeir sem hafa náð lágmarki á NÆM 2018

  • Kristín Helga Hákonardóttir
  • Adele Alexandra Pálsson
  • Patrik Viggó Vilbergsson

Nánari upplýsingar um lágmörk og viðmið finnið þið hér: 

 http://www.sundsamband.is/library/Sundithrottir/Lagmork-og-vidmid/SS%C3%8D%20vi%C3%B0mi%C3%B0%20og%20l%C3%A1gm%C3%B6rk%202017-2018%2026.8%202017%20endanleg%20%C3%BAtg%C3%A1fa.pdf

Til baka