Steindór Gunnarsson heiðraður eftir 35 ára þjálfaraferil á Suðurnesjum
Fjölmenni kom saman í gær, fimmtudaginn 19. nóvember, þegar ÍRB hélt kveðjuhóf fyrir Steindór Gunnarsson. Hann kveður nú félagið eftir áratugalangt starf í sundþjálfun í Reykjanesbæ.
Steindór hefur þjálfað sund í Reykjanesbæ frá árinu 1991. Fyrst starfaði hann hjá UMFN og síðar hjá ÍRB, eftir að sunddeildir Keflavíkur og Njarðvíkur sameinuðust árið 2001. Þar gegndi hann lengst af starfi yfirþjálfara og þjálfara afrekshóps. Undir hans stjórn hefur sundfólk úr Reykjanesbæ keppt á stærstu mótum heims, meðal annars á heimsmeistaramótum, Ólympíuleikum og Ólympíumótum fatlaðra.
Áhrif Steindórs ná langt út fyrir Reykjanesbæ. Hann hefur um árabil starfað sem landsliðsþjálfari, bæði með A-landsliði og unglingalandsliðum Íslands, og nýtur því mikilli vinsælla meðal sundmanna og þjálfaravíða um landið.
Steindór er þó hvergi nærri hættur í sundinu. Í sumar tók hann við starfi verkefnastjóra landsliða SSÍ og ber þar ábyrgð á miðþrepi afreksstarfsins. Hann leiðir og heldur utan um Evrópumeistaramót unglinga (EMU), Norðurlandameistaramótið (NM) og Smáþjóðaleikana, auk þess að vinna með sundfólki og þjálfurum um allt land.
Falur Daðason, fyrrverandi formaður sunddeildar ÍRB, flutti ávarp og stýrði dagskránni. Fjölmargir tóku til máls og rifjuðu upp góðar minningar og skemmtilegar stundir með Steindóri. Meðal ræðumanna voru Erla Dögg Haraldsdóttir, fyrrverandi landsliðskona og Ólympíufari, Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Hámundur Örn Helgason, framkvæmdastjóri UMFN, Birgir Már Bragason, framkvæmdastjóri Keflavíkur, Björn Sigurðsson, formaður SSÍ, og fyrrverandi sundkonurnar Marín Hrund Jónsdóttir, Soffía Klemenzdóttir og Jóna Helena Bjarnadóttir. SSÍ færði Steindóri blómvönd í tilefni dagsins.
Sundsamband Íslands þakkar Steindóri innilega fyrir ómetanlegt framlag hans til sundsins á Íslandi og fyrir allt það sem hann hefur gefið sundfólki sínu í gegnum árin. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs á vettvangi landsliðanna.










