Beint á efnisyfirlit síðunnar

Jóhanna Elín og Snorri Dagur með bestu afrek ÍM25 - NM-liðið tilkynnt

15.11.2026

Íslands- og unglingameistaramótinu í 25 metra laug lauk í Ásvallalaug í kvöld. Fjögur sund á lokakvöldinu voru undir NM-lágmarki, og að móti loknu var tilkynnt hvaða 14 sundmenn keppa fyrir Íslands hönd á Norðurlandameistaramótinu í Vilníus 4.–6. desember.

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir úr Sundfélagi Hafnarfjarðar (SH) hlaut verðlaun fyrir besta afrek kvenna. Hún synti 50 metra skriðsund á 25,04 sem gaf 757 stig. Jóhanna heldur á NM í Vilníus í desember.
Snorri Dagur Einarsson (SH) hlaut verðlaun fyrir besta afrek karla fyrir 50 metra bringusund á 27,04, sem gaf 785 stig. Snorri heldur á HM í Peking síðar í mánuðinum.

Hólmar Grétarsson (SH) varð Íslandsmeistari í 400 metra fjórsundi á 4:18,33 og náði NM-lágmarki. Hann bætti tímann sinn frá því í morgun um rúmar tólf sekúndur. Magnús Víðir Jónsson (SH) fylgdi eftir góðu sundi í morgun og vann 200 metra skriðsund á 1:50,11, aftur undir NM-lágmarki.

Jóhanna Elín vann 100 metra flugsund á 1:00,59 og Bergur Fáfnir Bjarnason (SH) 100 metra baksund á 53,86. Bæði syntu undir NM-lágmarki. Ylfa Lind Kristmannsdóttir úr Reykjavík kláraði mótið með því að vinna bæði 200 metra baksund og 200 metra fjórsund, eins og hún gerði í unglingaflokki í morgun.

SH vann báðar boðsundsgreinar kvöldsins, 4x100 metra fjórsund kvenna og karla.

Í lok móts var tilkynnt liðið sem fer á Norðurlandameistaramótið í 25 metra laug:

Konur

  • Alicja Julia Kempisty (SH)
  • Eva Margrét Falsdóttir (ÍRB)
  • Jóhanna Elín Guðmundsdóttir (SH)
  • Snæfríður Sól Jórunnardóttir (Álaborg)
  • Sólveig Freyja Hákonardóttir (SH)
  • Vala Dís Cicero (SH)

Karlar

  • Alexander Ari Andrason (Ármann)
  • Aron Bjarki Pétursson (SH)
  • Bergur Fáfnir Bjarnason (SH)
  • Denas Kazulis (ÍRB)
  • Hólmar Grétarsson (SH)
  • Karl Björnsson (SH)
  • Magnús Víðir Jónsson (SH)
  • Símon Elías Statkevicius (SH)

Birnir Freyr Hálfdánarson og Snorri Dagur Einarsson keppa ekki á NM þar sem þeir verða á Heimsmeistaramótinu í 25 metra laug í Peking á sama tíma.

Íslandsmeistarar kvöldsins

  • 400 m fjórsund karla: Hólmar Grétarsson (SH) 4:18,33 – NM-lágmark
  • 1500 m skriðsund kvenna: Katja Lilja Andriysdóttir (SH) 17:37,16
  • 200 m baksund kvenna: Ylfa Lind Kristmannsdóttir (Reykjavík) 2:16,62
  • 200 m skriðsund karla: Magnús Víðir Jónsson (SH) 1:50,11 – NM-lágmark
  • 100 m flugsund kvenna: Jóhanna Elín Guðmundsdóttir (SH) 1:00,59 – NM-lágmark
  • 50 m flugsund karla: Símon Elías Statkevicius (SH) 24,23
  • 50 m bringusund kvenna: Birgitta Ingólfsdóttir (SH) 32,55
  • 200 m bringusund karla: Snorri Dagur Einarsson (SH) 2:16,45
  • 100 m skriðsund kvenna: Alicja Julia Kempisty (SH) 57,49 - NM-lágmark unglinga
  • 100 m baksund karla: Bergur Fáfnir Bjarnason (SH) 53,86 – NM-lágmark
  • 200 m fjórsund kvenna: Ylfa Lind Kristmannsdóttir (Reykjavík) 2:19,54
  • 800 m skriðsund karla: Árni Þór Pálmason (ÍRB) 8:41,03
  • 800 m skriðsund karla, flokkur fatlaðra: Franciszek Adam Czachorowski (ÍRB) 10:08,52
  • 4x100 m fjórsund kvenna: SH (Ema Austa Pratusyté, Birgitta Ingólfsdóttir, Nadja Djurovic, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir) 4:19,25
  • 4x100 m fjórsund karla: SH (Bergur Fáfnir Bjarnason, Snorri Dagur Einarsson, Símon Elías Statkevicius, Birnir Freyr Hálfdánarson) 3:40,41

Myndir með frétt

Til baka