Beint á efnisyfirlit síðunnar

Annað met, fyrstu Íslandsmeistaratitlarnir, langar sigurgöngur og sjö undir NM-lágmörkum á laugardagskvöldi ÍM25

14.11.2026

Annað úrslitakvöld ÍM25 í Ásvallalaug bauð upp á allt: nýtt Íslandsmet unglinga, nýja Íslandsmeistara og reynslubolta sem halda velli ár eftir ár. Sjö sund voru undir NM-lágmarki.

Fjórir sundmenn unnu sinn fyrsta eða annan Íslandsmeistaratitil á ferlinum í kvöld. Denas Kazulis úr Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar (ÍRB) vann sinn fyrsta titil í 100 metra skriðsundi á nýju unglingameti, 49,20. Hann er þá búinn að bæta metið í 100 metra skriðsundi þrisvar sinnum á þremur vikum. Árni Þór Pálmason (ÍRB) vann 1500 metra skriðsund á 16:31,64 og Margrét Anna Lapas (ÍRB) 100 metra bringusund á 1:12,92. Báðir titlarnir eru þeir fyrstu á ferlinum.

Alicja Julia Kempisty úr Sundfélagi Hafnarfjarðar (SH) vann sinn annan Íslandsmeistaratitil á ferlinum, og báðir komu á þessu móti. Hún bætti sig í 200 metra skriðsundi og synti á 2:03,00, sem er undir NM-lágmarki bæði unglinga og fullorðinna.

Birnir Freyr Hálfdánarson (SH), sem heldur á HM í Peking síðar í mánuðinum, vann 200 metra fjórsund í sjöunda sinn í röð. Hann hefur unnið greinina á hverju ÍM25 sem haldið hefur verið síðan 2019. Þetta var 15. einstaklingstitill hans á ÍM25 og 29. einstaklings Íslandsmeistaratitill hans ef tekið er saman ÍM25 og ÍM50.

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir (SH) vann 50 metra flugsund fjórða árið í röð og í fimmta sinn alls. Það varð 20. einstaklingstitill hennar á ÍM25, og alls á hún nú 42 Íslandsmeistaratitla í einstaklingsgreinum, þegar litið er á ÍM25 og ÍM50. Ylfa Lind Kristmannsdóttir úr Reykjavík vann 100 metra baksund fjórða árið í röð og vann þar með sinn 10. einstaklingstitil á ÍM25.

Snorri Dagur Einarsson (SH) vann 50 metra bringusund þriðja árið í röð á 27,04. Hann sagði eftir sundið að hinir strákarnir væru orðnir svo hraðir að hann hefði þurft að gefa vel í til að vera á undan, en þessi tími gefur honum eflaust gott sjálfstraust inn í HM. Þess má geta að Aron Bjarki Pétursson (SH), sem endaði í öðru sæti ásamt Karl Björnssyni (SH), synti undir NM-lágmarki í greininni og er þar með búinn að bætast í hópinn sem fer að keppa í desember.

Hólmar Grétarsson (SH) vann 200 metra flugsund þriðja árið í röð og bætti sig þegar hann kom í bakkann á tímanum 1:59,20. Hann sagðist hafa viljað meira og stefnir nú á NM, þar sem hann vill sanna sig og vonandi ná Íslandsmetinu í greininni.

Sólveig Freyja Hákonardóttir (SH) vann bæði 400 metra fjórsund og 800 metra skriðsund í kvöld, krefjandi tvenna á sama kvöldi. Hún hafði aldrei áður unnið 400 metra fjórsund né 800 metra skriðsund, og bætti sig í 800 metra skriðsundi, 9:01,55. Hún synti svo með sigursveit SH í 4x100 metra skriðsundi.

Guðbjörg Helga Hilmarsdóttir (Breiðablik) synti sig inn í unglingalandsliðið þegar hún kom í bakkann á 2:07.67 í 200 metra skriðsundi, en lágmarkið er 2:08.52.

Íslandsmeistarar kvöldsins

  • 400 m fjórsund kvenna: Sólveig Freyja Hákonardóttir (SH) 4:57,21 – NM-lágmark unglinga
  • 1500 m skriðsund karla: Árni Þór Pálmason (ÍRB) 16:31,64 – bæting
  • 50 m baksund karla: Bergur Fáfnir Bjarnason (SH) 25,66
  • 200 m skriðsund kvenna: Alicja Julia Kempisty (SH) 2:03,00 – bæting, NM-lágmark
  • 200 m fjórsund karla: Birnir Freyr Hálfdánarson (SH) 2:03,84
  • 100 m bringusund kvenna: Margrét Anna Lapas (ÍRB) 1:12,92
  • 50 m bringusund karla: Snorri Dagur Einarsson (SH) 27,04 – NM-lágmark
  • 50 m flugsund kvenna: Jóhanna Elín Guðmundsdóttir (SH) 27,15 – NM-lágmark
  • 100 m skriðsund karla: Denas Kazulis (ÍRB) 49,20 – unglingamet, NM-lágmark
  • 100 m baksund kvenna: Ylfa Lind Kristmannsdóttir (Reykjavík) 1:03,36
  • 200 m flugsund karla: Hólmar Grétarsson (SH) 1:59,20 – bæting, NM-lágmark
  • 800 m skriðsund kvenna: Sólveig Freyja Hákonardóttir (SH) 9:01,55 – bæting, NM-lágmark unglinga
  • 4x100 m skriðsund karla: SH (Birnir Freyr Hálfdánarson, Magnús Víðir Jónsson, Veigar Hrafn Sigþórsson, Símon Elías Statkevicius) 3:21,03
  • 4x100 m skriðsund kvenna: SH (Nadja Djurovic, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, Alicja Julia Kempisty, Sólveig Freyja Hákonardóttir) 3:48,32

Lokadagur ÍM25 er á morgun, sunnudag, með undanrásum kl. 9:00 og úrslitum kl. 16:30.

Öll úrslit er að finna hér

Hægt að horfa á beint streymi hér

Til baka