Sex NM-lágmörk og tvö met í úrstlium á ÍM25
Fyrsti úrslitahluti Íslands- og unglingameistaramótsins í 25 metra laug fór fram í Ásvallalaug í kvöld. Tvö met féllu, bæði í 50 metra skriðsundi karla, og sex Íslandsmeistarar syntu undir lágmarki fyrir Norðurlandameistaramótið í Vilníus í desember.
Símon Elías Statkevicius úr Sundfélagi Hafnarfjarðar (SH) varð Íslandsmeistari í 50 metra skriðsundi á 21,74, aðeins einum hundraðshluta frá eigin Íslandsmeti. Denas Kazulis úr Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar (ÍRB) varð annar á nýju unglingameti, 22,43. Hann bætti eigið met frá því í október um 0,07 sekúndur. Jón Ingi Einarsson úr Óðni varð þriðji á 24,08, sem er nýtt aldursflokkamet. Hann bætti met Denasar frá 2023 (25,17) um rúma sekúndu.
Nokkrir urðu bæði unglingameistarar í morgun og Íslandsmeistarar í kvöld: Thea Sif Hjaltadóttir og Ylfa Lind Kristmannsdóttir úr Reykjavík, og Alicja Julia Kempisty, Hólmar Grétarsson og Sólveig Freyja Hákonardóttir úr SH.
Alicja Julia bætti sig um fimm sekúndur í 400 metra skriðsundi og synti á 4:22,81. Sá tími er undir NM-lágmarki unglinga og aðeins hálfri sekúndu frá lágmarki fullorðinna. Hún vann svo sinn þriðja titil dagsins með sveit SH í 4x200 metra skriðsundi. Hólmar bætti sig um rúmar fimm sekúndur í sömu grein, úr 3:59,48 í 3:54,05, og náði NM-lágmarki. Hann var líka í B-sveit SH sem vann 4x200 metra skriðsund karla.
Álfrún Lóa Jónsdóttir úr Reykjavík bætti sig um tæpar fjórar sekúndur í 200 metra bringusundi og synti á 2:39,56. Hún átti greinilega heilmikið inni og synti síðustu 50 metrana á 39,76.
Í 100 metra fjórsundi kvenna munaði aðeins 0,02 sekúndum á öðru og þriðja sæti. Ema Austa Pratusyté (SH) varð önnur á 1:09,54 og Eydís Jóhannesdóttir (ÍRB) þriðja á 1:09,56.
Íslandsmeistarar kvöldsins
- 100 m fjórsund kvenna: Thea Sif Hjaltadóttir (Reykjavík) 1:08,92
- 100 m fjórsund karla: Adam Leó Tómasson (SH) 58,32 – bæting
- 400 m skriðsund kvenna: Alicja Julia Kempisty (SH) 4:22,81 – bæting, NM-lágmark unglinga
- 400 m skriðsund karla: Hólmar Grétarsson (SH) 3:54,05 – bæting, NM-lágmark
- 50 m baksund kvenna: Ylfa Lind Kristmannsdóttir (Reykjavík) 29,99
- 100 m flugsund karla: Veigar Hrafn Sigþórsson (SH) 56,21 – bæting
- 200 m flugsund kvenna: Sólveig Freyja Hákonardóttir (SH) 2:23,35
- 200 m baksund karla: Bergur Fáfnir Bjarnason (SH) 1:56,24 – bæting, NM-lágmark
- 200 m bringusund kvenna: Álfrún Lóa Jónsdóttir (Reykjavík) 2:39,56 – bæting
- 100 m bringusund karla: Snorri Dagur Einarsson (SH) 1:00,14 – NM-lágmark
- 50 m skriðsund kvenna: Jóhanna Elín Guðmundsdóttir (SH) 25,04 – NM-lágmark
- 50 m skriðsund karla: Símon Elías Statkevicius (SH) 21,74 – NM-lágmark
- 4x200 m skriðsund kvenna: SH (Alicja Julia Kempisty, Sólveig Freyja Hákonardóttir, Nadja Djurovic, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir) 8:24,62
- 4x200 m skriðsund karla: B-sveit SH (Magnús Víðir Jónsson, Hólmar Grétarsson, Adam Leó Tómasson, Kajus Jatautas) 7:33,93
Mótið heldur áfram á morgun með undanrásum kl. 9:00 og úrslitum kl. 16:30.
Öll úrslit er hægt að finna hér.
Beint streymi er að finna hér.