Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fyrsta hluta ÍM25 lokið - Nýtt uglingamet í 4x50m boðsundi karla

13.11.2026

Íslands- og unglingameistaramótið í 25 metra laug (ÍM25) fór af stað með látum í Ásvallalaug í morgun. Karlasveit ÍRB kláraði hlutann með nýju unglingameti í 4x50 metra fjórsundsboðsundi, 1:46.36, og bætti eigið met frá 2024 um 0,70 sekúndur.

Ylfa Lind Kristmannsdóttir úr Reykjavík var sigursæl og varð unglingameistari bæði í 50 metra baksundi og 50 metra skriðsundi. Snævar Örn Kristmannsson (S19) úr Breiðablik varð tvöfaldur Íslandsmeistari í flokki fatlaðra, í 100 metra flugsundi og 50 metra skriðsundi. Denas Kazulis, Nikolai Leo Jónsson og Daði Rafn Falsson úr ÍRB unnu allir einstaklingsgrein áður en þeir settu saman met í boðsundinu, ásamt Mikael Fannari Arnarsyni.

Sundfélag Hafnarfjarðar (SH) vann 4x50 metra fjórsundið í bæði kvenna- og karlaflokki. Í karlasveitinni syntu Bergur Fáfnir Bjarnason, Snorri Dagur Einarsson, Símon Elías Statkevicius, og Veigar Hrafn Sigþórsson til sigurs. Kvennasveitina skipuðu Sólveig Freyja Hákonardóttir, Katja Lilja Andriysdóttir, Nadja Djurovic og Jóhanna Elín Guðmundsdóttir.

Unglingameistarar morgunsins

  • 100 m fjórsund: Thea Sif Hjaltadóttir (Reykjavík) og Nikolai Leo Jónsson (ÍRB)
  • 400 m skriðsund: Alicja Julia Kempisty (SH) og Hólmar Grétarsson (SH)
  • 50 m skriðsund: Ylfa Lind Kristmannsdóttir (Reykjavík) og Denas Kazulis (ÍRB)
  • 50 m baksund kvenna: Ylfa Lind Kristmannsdóttir (Reykjavík)
  • 200 m baksund karla: Finlay German (Reykjavík)
  • 100 m flugsund karla: Daði Rafn Falsson (ÍRB)
  • 200 m flugsund kvenna: Sólveig Freyja Hákonardóttir (SH)
  • 200 m bringusund kvenna: Auguste Balciunaite (SH)
  • 100 m bringusund karla: Karl Björnsson (SH)

Íslandsmeistarar í flokki fatlaðra

  • 400 m skriðsund: Franciszek Adam Czachorowski (ÍRB, S19)
  • 50 m baksund: Emelía Ýr Gunnarsdóttir (Fjörður, S14)
  • 100 m flugsund: Snævar Örn Kristmannsson (Breiðablik, S19)
  • 50 m skriðsund: Anna Rósa Þrastardóttir (Fjörður, S14) og Snævar Örn Kristmannsson (Breiðablik, S19)

Úrslit byrja í kvöld kl 16:30.

Öll úrslit er hægt að finna hér.

Beint streymi er að finna hér.

Frítt inn í Ásvallalaug að horfa og hvetja!

Til baka