Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sólveig Freyja og Alexander Ari stóðu sig vel í Dakar

09.11.2026

Sundkeppni Ólympíuleika ungmenna (YOG) fór fram í Dakar í Senegal dagana 1. - 6. nóvember. Ísland átti þar tvo keppendur: Sólveig Freyja Hákonardóttir (SH, f. 2009) og Alexander Ari Andrason (SS04 í Svíþjóð, f. 2010). Með þeim í för var Hrafnhildur Lúthersdóttir, þjálfari og fararstjóri sundfólksins. Brynja Guðjónsdóttir var aðalfararstjóri íslenska hópsins og Ólafur Engilbert Árnason sjúkraþjálfari.

Hópurinn hélt af stað 27. október; Sólveig og Hrafnhildur flugu frá Keflavík en Alexander frá Stokkhólmi þar sem hann býr. Þau hittust í Lissabon og héldu saman þaðan til Dakar. Fyrstu dagarnir einkenndust af miklum hita, aðlögun, að skoða sig um Ólympíuþorpið og að halda sér við í ræktinni þar sem sundfólkið komst því miður ekki í laug fyrr en 29. október. Þann 31.október var setningarhátíð leikanna og voru þau Sólveig og Alexander fánaberar Íslands. Foreldrar beggja voru í stúkunni með íslenska fána að styðja sitt fólk.

Aðstæður voru erfiðar. Hitinn var iðulega 31 - 33 stig, keppt var í útilaug sem var of heit og ferðalagið milli Ólympíuþorpsins og laugarinnar tók yfirleitt um 90 mín hvora leið. Krakkarnir pössuðu vel upp á vökvann og kælingu og vöndust hitanum smám saman þegar leið á vikuna.

Sólveig synti 400 m skriðsund 1. nóvember á 4:38.76 og endaði í 12. sæti af 21. Í 50 m baksundi þann 5. nóvember bætti hún sig um tæpa hálfa sekúndu þegar hún synti á 32.66 (fyrra persónulega metið hennar var 33.12), vann sinn riðil og endaði í 33. sæti af 45. Hún lauk keppni 6. nóvember á 200m skriðsundi, synti á 2:11.40 og hafnaði í 14. sæti af 33. Tímarnir í lengri greinunum voru nokkuð frá hennar besta, sem kemur ekki á óvart í þessum aðstæðum. En 200 m skriðsund var vel útfært, þar sem hún splittaði vel og gaf ekkert eftir á lokasprettinum.

Alexander synti 100 m flugsund þann 1.nóvember á 56.82 og endaði í 10. sæti af 30. Í 50 m flugsundi þann 4. nóvember bætti hann sig um 25 hundraðshluta, synti á 25.40 og endaði í 9. sæti af 42. Hann lauk keppni 6. nóvember á 200 m flugsundi, synti á 2:14.33 og varð í 9. sæti af 11 keppendum. Aðeins átta efstu komust áfram í úrslit svo að Alexander var ávallt fyrsti eða annar varamaður inn í úrslit og munaði oft litlu að hann kæmist áfram. 

Þrátt fyrir hita og krefjandi aðstæður skemmtu krakkarnir sér konunglega. Þau fengu dýrmæta reynslu af því að keppa á stórmóti innan um ungt íþróttafólk víðs vegar að úr heiminum.

"Sólveig og Alexander stóðu sig mjög vel miðað við aðstæður. Þau eru bæði efnilegir og frábærir krakkar og við hlökkum til að fylgjast með þeim blómstra enn frekar í framtíðinni," segir Hrafnhildur Lúthersdóttir, verkefnastjóri SSÍ og þjálfari hópsins á YOG.

Næsta verkefni er ÍM25, sem fer fram 13. - 15. nóvember, aðeins nokkrum dögum eftir heimkomu - þar verður Sólveig Freyja meðal keppenda.

Til hamingju Sólveig Freyja og Alexander Ari, og velkomin heim!

 

Sólveig Freyja Hákonardóttir (SH)

  • 400 m skriðsund (1. nóv.): 4:38.76 – 12. sæti af 21
  • 50 m baksund (5. nóv.): 32.66 – 33. sæti af 45, persónulegt met (áður 33.12)
  • 200 m skriðsund (6. nóv.): 2:11.40 – 14. sæti af 33

Alexander Ari Andrason (SS04, Svíþjóð)

  • 100 m flugsund (1. nóv.): 56.82 – 10. sæti af 30
  • 50 m flugsund (4. nóv.): 25.40 – 9. sæti af 42, persónulegt met (áður 25.65)
  • 200 m flugsund (6. nóv.): 2:14.33 – 9. sæti af 11

Myndir með frétt

Til baka