Beint á efnisyfirlit síðunnar

Endanlegt val á sundfólki sem fer á HM25 í Beijing

26.10.2026

Eftir skemmtilega keppni á CUBE-móti SH um helgina um sæti á HM25 í Beijing endaði Birnir Freyr Hálfdánarson efstur, aðeins 2% frá A-lágmarki World Aquatics. Hann náði því þegar hann synti 200 metra fjórsund á glæsilegu nýju Íslandsmeti, 1:57.57. Fyrir mótið var ljóst að Snorri Dagur Einarsson myndi taka þátt í HM25 en þau Einar Margeir Ágústsson og Snæfríður Sól Jórunnardóttir gefa ekki kost á sér að þessu sinni. Þeir verða því tveir sem fara til Beijing - Snorri Dagur og Birnir Freyr.

Landsliðshópurinn heldur til Beijing sunnudaginn 22. nóvember. Dagana 23.–27. nóvember tekur hópurinn þátt í sameiginlegum æfingbúðum með landsliði Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar. Að búðunum loknum flytur hópurinn sig yfir á keppnishótelið, þar sem lokaundirbúningur fyrir Heimsmeistaramótið fer fram.

Keppni á HM25 hefst þriðjudaginn 1. desember og lýkur sunnudaginn 6. desember.

Sundfólk

  • Birnir Freyr Hálfdánarson – Sundfélag Hafnarfjarðar
  • Snorri Dagur Einarsson – Sundfélag Hafnarfjarðar

Starfsfólk

  • Hlynur Skagfjörð Sigurðsson – sjúkraþjálfari
  • Mladen Tepavcevic – þjálfari
  • Dómari – Ingibjörg Ýr Pálmadóttir

Sundsamband Íslands óskar öllum keppendum til hamingju með góðan árangur á Cube-mótinu og óskar landsliðshópnum góðs gengis í undirbúningnum fyrir HM25 í Beijing!

Til baka