Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fjöldi meta féllu á CUBE-móti SH - Birnir bætti 23 ára gamalt Íslandsmet

25.10.2026

Glæsilegur árangur náðist á Cube-móti SH sem fram fer í Ásvallalaug nú um helgina, en tvö Íslandsmet hafa fallið á mótinu, sem og tvö Íslandsmet unglinga.

Birnir Freyr Hálfdánarson gerði sér lítið fyrir og bætti 23 ára gamalt Íslandsmet Arnar Arnarsonar í 200 metra fjórsundi. Birnir synti á tímanum 1:57,57 og bætti þar með met Arnar um 0,34 sekúndur. Gamla metið, 1:57,91, hafði staðið síðan í mars árið 2003.

Símon Elías Statkevicius lét einnig til sín taka og bætti eigið Íslandsmet í 50 metra skriðsundi. Símon synti á tímanum 21,73 sekúndum og bætti þar með tæplega ársgamalt met sitt, 21,75 sekúndur, um tvo hundraðshluta úr sekúndu.

Denas bætti síðan tvö Íslandsmet unglinga um helgina. Það fyrra gerði hann í 50 metra skriðsundi þegar hann sló sitt eigið Íslandsmet unglinga um sex hundraðshluta úr sekúndu er hann kom í bakkann á 22,50. Seinna metið sló hann í 100 metra skriðsundi. Denas synti þá á tímanum 49,32 og bætti gamla metið, sem Birnir Freyr átti, um fimm hundraðshluta úr sekúndu.

Virkilega flottur árangur hjá þeim Birni, Símoni og Denas um helgina!

Myndir með frétt

Til baka