Beint á efnisyfirlit síðunnar

Klaus Jürgen Ohk sjötti heiðursfélagi SSÍ

19.10.2026

Klaus Jürgen Ohk var útnefndur sjötti heiðursfélagi Sundsambands Íslands (SSÍ) á uppskeruhátíð Sundfélags Hafnarfjarðar (SH) sunnudaginn 18. október síðastliðinn. Björn Sigurðsson, formaður SSÍ, afhenti Klaus viðurkenningarskjöld og blómvönd við hátíðlega athöfn og fór í stuttu ávarpi yfir farsælan feril hans og framlag til íslenskrar sundíþróttar. Við sama tilefni kvaddi SH Klaus og þakkaði honum fyrir ómetanlegt starf í þágu félagsins undanfarin 18 ár.

Klaus hefur um áratugaskeið verið einn af öflugustu leiðtogum íslenskrar sundíþróttar og lagt mikið af mörkum til uppbyggingar og þróunar sundstarfs hér á landi, einkum hjá Sundfélagi Hafnarfjarðar. Hann hóf þjálfaraferil sinn aðeins 15 ára gamall og hefur helgað sundíþróttinni krafta sína í nærri hálfa öld. Klaus kom fyrst til SH haustið 1991 og starfaði þar sem þjálfari fram yfir Ólympíuleikana 1996, en tók þá við stöðu yfirmanns sundmála og landsliðsþjálfara í Lúxemborg. Haustið 2008 sneri hann aftur til SH og gegndi þar störfum yfirþjálfara og framkvæmdastjóra til haustsins 2026.

Undir stjórn Klaus hefur Sundfélag Hafnarfjarðar skipað sér í fremstu röð íslenskra sundfélaga. Á árunum 2009–2025 vann félagið samtals 25 bikarmeistaratitla í fyrstu og annarri deild karla og kvenna. Frá endurkomu hans árið 2008 hafa sundmenn félagsins unnið til yfir 22.000 verðlauna í einstaklingsgreinum, þar af tæplega 6.600 á meistaramótum Sundsambands Íslands. Á sama tímabili hafa sundmenn SH sett samtals 128 Íslandsmet, Íslandsmet unglinga og Íslandsmet í aldursflokkum.

Klaus er lögfræðingur að mennt og hefur í störfum sínum verið þekktur fyrir réttsýni, fagmennsku og mikinn metnað. Með áratugalöngu starfi sínu hefur hann ekki aðeins átt stóran þátt í að byggja upp eitt öflugasta sundfélag landsins heldur einnig haft mikil og varanleg áhrif á íslenska sundíþrótt. Framlag hans til þjálfunar, uppbyggingar og framþróunar sundíþróttarinnar er til fyrirmyndar og öðrum til eftirbreytni.

Til hamingju Klaus og takk fyrir samstarfið í gegnum árin!

Til baka