Beint á efnisyfirlit síðunnar

Næsta dómaranámskeið er 20.október

13.10.2026

Næsta dómaranámskeið verður haldið í Ásvallalauginni í Hafnarfirði þann 20.október næstkomandi, kl 18:00. Ef þú hefur áhuga á sundi og vilt besta útsýnið yfir laugina þá er um að gera að skrá sig!

Skráning á dómaranámskeiðið 20.október er hér.

Til að verða almennur sunddómari þarf sunddómaranemi frá félagi á höfuðborgarsvæðinu og/eða af Suðurnesjum að safna a.m.k. 55 punktum á einu ári samkvæmt stigakerfi SSÍ. Af þessum 55 punktum þurfa a.m.k. 25 punktar að ávinnast á mótum SSÍ. Dómaranemi frá félögum annars staðar á landinu/utan höfuðborgarsvæðisins þurfa að safna a.m.k. 55 punktum á þremur árum samkvæmt sama kerfi.

Stigakerfi dómaranefndar SSÍ
Sunddómarar safna punktum fyrir störf sem dómarar á sundmótum og fá punkta miðað við eftirfarandi kerfi:

SSÍ mót og alþjóðleg mót: 5 punktar fyrir hvern mótshluta,
Opin mót: 3 punktar fyrir hvern mótshluta,
Héraðsmót: 3 punktar fyrir hvern mótshluta,
Innanfélagsmót: 3 punktar fyrir hvern mótshluta.

Komdu á bakkann!

Til baka