Beint á efnisyfirlit síðunnar

HM25: Þrep þrjú í gildi á Cube-móti SH

09.10.2026

Síðasta tækifærið til að ná inn á HM25 er á Cube-móti SH þann 24-25. október næstkomandi. Stjórn SSÍ hefur ákveðið að senda að minnsta kosti tvo sundmenn á HM25 í ár.

Lágmarkakerfið fyrir mótið var sett upp í þremur þrepum:

  • Þrep 1 – Evrópumeistaramótið í 25m laug 2.–7. desember 2025 (WA A-lágmark )
  • Þrep 2 – Sterk alþjóðleg mót í 50 metra laug (WA A-lágmark +2,5%)
    • AP Race London International, 23.–25. maí 2026
    • Mare Nostrum mótaröðin, 23.–31. maí 2026
    • Evrópumeistaramót unglinga, 7.–12. júlí 2026
    • Evrópumeistaramótið í 50 metra laug, 10.–16. ágúst 2026
  • Þrep 3 – Cube-mót SH í 25m laug, 24.–25. október 2026 (WA A-lágmark +1%)

Eftir þrep tvö er staðan sú að Snæfríður Sól, Snorri Dagur og Einar Margeir hafa náð inn á HM25. Aftur á móti gefa Snæfríður Sól og Einar Margeir ekki kost á sér á HM25 í ár. Snorri Dagur gefur kost á sér á HM25, og því stendur eftir að minnsta kosti eitt sæti.

Þrep þrjú er nú í gildi, og tekin hefur verið ákvörðun að ef enginn nær þrepi þrjú mun sá sem syndir lengst undir WA B-lágmarki á Cube-mótinu vera valinn til að taka þátt á HM25.

Hægt er að sjá lágmörk á HM25 og reglur hér.

Stjórn felur yfirmanni Landsliðsmála að ljúka vali á keppendum á HM25.

Til baka