Beint á efnisyfirlit síðunnar

Mælingar og æfingadagur landsliðshópa SSÍ

06.10.2026

Fyrstu dagar októbermánaðar voru annasamir hjá landsliðshópum SSÍ. Afrekslandsliðið fór í sund- og styrktarmælingar og landsliðshóparnir hittust á sameiginlegum æfingadegi í Hafnarfirði.

Sund- og styrktarmælingar afrekslandsliðsins

Sund- og styrktarmælingar afrekslandsliðsins fóru fram fimmtudaginn 1. október í Laugardalslaug og gengu vel. Átta sundmenn tóku þátt í sundmælingunum þar sem verið var að mæla mjólursýrumyndun eftir sund. Markmið sundgreiningar er að finna út dreifingu á orkukerfi sundmanna (loftháð/loftfyrrt), og að finna út einstaklingsmiðað æfingaálag til að vonandi gera æfingar tímabilsins sérhæfðari fyrir sundmanninn. Þjálfararnir Sveinbjörn Pálmi (ÍRB) og Hjalti (Ármann) aðstoðuðu við framkvæmd sundmælinganna og leystu það verkefni vel af hendi. Styrktarmælingar fóru einnig fram í Laugardalslauginni, framkvæmdar af prófessorum úr Háskóla Íslands, leitt af Dr. Milos Petrovic.
Ragnar Guðmundsson vinnur nú úr niðurstöðum mælinganna - hann gerir sundgreiningu fyrir hvern sundmann og fer síðan yfir niðurstöðurnar með þjálfara sundmannsins, ásamt ráðleggingum fyrir komandi æfingatímabil.

Æfingadagur landsliðshópa – liðsandi, gleði og núðlusund

Laugardaginn 3. október fór æfingadagur landsliðshópa SSÍ fram í Ásvallalaug. Æfingin var sett upp til að efla liðsanda, samkennd og gleði og þannig að allir gætu tekið þátt, sprettsundsmenn sem og aðrir. Dadó (SH) setti æfinguna upp og stjórnaði henni, og með honum á bakkanum voru Hjalti (Ármann) og Steindór (SSÍ).
Æfingunni lauk á óhefðbundnu boðsundi. Sundmönnunum var skipt í tvö lið sem kepptu í núðlusundi og í því að flytja bolta á milli bakka án þess að nota hendur. Það sem sundmennirnir vissu ekki fyrirfram var að sigur réðst ekki endilega af því hver kom fyrstur í mark, þjálfararnir gáfu nefnilega stig fyrir góðan liðsanda, hvatningu og samstöðu. Á fundinum á eftir var farið yfir hvernig úrslitin réðust og af hverju hvatning, gleði og samstaða skipta svona miklu máli. Sigurliðið fékk veglegt hrekkjavökusælgæti í verðlaun.
Eftir æfinguna var haldið í sal sjúkraþjálfunarinnar Ásmegin, þar sem Pálmey Magnúsdóttir (SH) sá um mat fyrir sundfólkið. Steindór kynnti lágmörk, æfingabúðirnar á Tenerife og nýja verkaskiptingu starfsfólks SSÍ. Þá fór Thelma Rún Rúnarsdóttir næringarfræðingur yfir það hvernig sundfólk getur hámarkað árangur sinn með réttri næringu, svefni og hvíld. Hún ræddi meðal annars tímasetningu og uppbyggingu máltíða fyrir æfingar og keppni, koffínnotkun og fæðubótarefni.

SSÍ þakkar sundfólki, þjálfurum, fyrirlesurum og starfsfólki Laugardalslaugar og Ásvallalaugar kærlega fyrir vel heppnaða daga.

Myndir með frétt

Til baka