Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hvað kostar í raun að vera 12 ára sundmaður?

06.10.2026

Umræða um kostnað við íþróttaiðkun barna hefur verið áberandi síðustu daga - og sú umræða er mikilvæg. Íþróttir skipta máli fyrir heilsu, líðan, félagsleg tengsl og lífsgæði barna og ungmenna. Fjárhagur fjölskyldunnar ætti ekki að ráða því hvort barn fær tækifæri til að stunda íþrótt sem það hefur áhuga á.

Sundsamband Íslands ákvað að skoða eitt dæmi nánar: Hvað kostar í raun að vera 12 ára keppnissundmaður á Íslandi? Og við vildum ekki bara skoða æfingagjöldin. Við töldum allt með.

Við skoðuðum dæmi frá fjórum sundfélögum á suðvesturhorninu. Í öllum tilfellum var miðað við 12 ára sundmann í keppnishópi sem tæki þátt í Akranesleikum og Íslandsmeistaramót Aldursflokka (AMÍ), og æfði 4-6 sinnum í viku með liðinu.

Við tókum saman: Æfingagjöld, frístundastyrki sveitarfélaga, allan búnað sem þarf til að byrja og kostnað við keppnisferðir (miðað við 2026 verð). Búnaður er: sundbolur, sundgleraugu x2, sundhetta, sundtaska, handklæði, og félagsgalli.

Niðurstaðan er töluvert mismunandi eftir búsetu og félagi, keppnisáætlun og þörf á búnaði, og ferðakostnaður getur auðvitað verið töluvert hærri hjá sundfólki utan Suðvesturlands. En að meðaltali kostar um 225,000 kr á ári að vera 12 ára keppnissundmaður í dæmunum sem við skoðuðum. Það eru um 18,700 kr á mánuði.

En hvað ef börnin eru tvö? Fyrir fjölskyldur með fleiri en eitt barn í íþróttum getur kostnaðurinn fljótt margfaldast. Öll félögin í dæminu bjóða einhvers konar systkina- eða fjölskylduafslátt. Við reiknuðum því sama dæmi fyrir tvo 12 ára tvíbura, og var meðaltalið þá 385,000 kr á ári, eða um 192,500 per barn á ári, eða um 16,040 kr per barn á mánuði.

Ódýrara þýðir ekki ódýrt. Dæmin sýna að sund getur verið tiltölulega aðgengileg keppnisíþrótt, ekki síst þegar horft er til þess hversu oft börnin æfa í hverri viku. En það þýðir ekki að kostnaðurinn sé lítill. Hundruð þúsunda króna á ári skipta máli í fjárhagsáætlun fjölskyldu - og sérstaklega þegar fleiri en eitt barn stundar íþróttir. Frístundastyrkir sveitarfélaga og systkinaafslættir félaga hafa því raunveruleg áhrif á möguleika barna til þátttöku.

Íþróttir eiga að vera fyrir öll börn. Íþróttahreyfingin hefur mikilvægu hlutverki að gegna við að skapa börnum tækifæri til hreyfingar, félagsstarfs og þátttöku. Kostnaður skiptir þar máli og með þessari samantekt viljum við fyrst og fremst sýna með gagnsæjum hætti hvað felst í kostnaði við sundiðkun 12 ára barns - og hvað fjölskyldan fær fyrir þann kostnað.

Við hjá Sundsambandi Íslands teljum að skipulagt íþróttastarf sé ekki munaður. Hreyfing, heilsa, félagsskapur, markmið, sjálfstraust og sú tilfinning að tilheyra hópi hafa gildi sem verður seint mælt eingöngu í krónum. Það ætti að vera sameiginlegt markmið íþróttahreyfingarinnar, sveitarfélaga og stjórnvalda að kostnaður verði ekki til þess að barn þurfi að standa utan íþróttastarfs. Við viljum að sund sé aðgengilegt fyrir öll börn, óháð efnahag fjölskyldunnar. Og við viljum vinna að því að það haldist þannig.

Til baka