SH bikarmeistari í kvenna- og karlaflokki - Snæfríður Sól og Snorri Dagur sundfólk ársins
Bikarkeppni SSÍ fór fram á laugardaginn í Vatnaveröld í Reykjanesbæ og þar var hart barist frá fyrsta sundi til þess síðasta. Þegar stigin voru talin stóð Sundfélag Hafnarfjarðar uppi sem bikarmeistari bæði í kvenna- og karlaflokki. Í 2. deild átti Óðinn frábæran dag og vann bæði kvenna- og karlaflokkinn.
Úrslit í 1. deild
- Kvennaflokkur: SH bikarmeistari með 199 stig, Reykjavík í 2. sæti með 130 stig
- Karlaflokkur: SH bikarmeistari með 240 stig, ÍRB í 2. sæti með 143 stig
Úrslit í 2. deild
- Kvennaflokkur: Óðinn sigraði með 133 stig, ÍA í 2. sæti með 111 stig
- Karlaflokkur: Óðinn sigraði með 154 stig
Í ár var aftur keppt um bikar í bæði kvenna- og karlaflokki, en árið 2025 var aðeins keppt um einn sameiginlegan bikar. Karlalið SH heldur sigurgöngu sinni áfram og hefur nú unnið bikarinn níu ár í röð. Kvennaliðið endurheimti titilinn en þær unnu hann síðast árið 2022 og þar áður 2017–2019. Alls hefur SH nú unnið Bikarkeppnina 18 sinnum, fyrst árið 1995.
Eftir mótið var komið að uppskeruhátíð SSÍ, þar sem sundfólk, þjálfarar, og sjálfboðaliðar komu saman og gerðu upp sundárið. Dregið var í happdrætti, bikarmeistararnir tóku við verðlaunum sínum og svo var komið að hápunkti kvöldsins, útnefningu sundfólks ársins.
Snæfríður Sól Jórunnardóttir var valin sundkona ársins, en hún var í 13. sæti á heimslistanum í 200 metra skriðsundi í desember 2025 og endaði í 15. sæti í sömu grein á EM25.
Snorri Dagur Einarsson var valinn sundmaður ársins. Hann varð í 4. sæti í 50 metra bringusundi á EM23 í sumar, aðeins einu sæti frá verðlaunapalli, og keppti einnig á EM25 í desember.
Bikarkeppnin er alltaf eitt skemmtilegasta mót ársins. Þar syndir fólk fyrir félagið sitt og liðsheildin skín í gegn. Sundsamband Íslands óskar SH, Óðni, Snæfríði Sól og Snorra Degi innilega til hamingju. Við þökkum öllum félögum, þjálfurum, dómurum og sjálfboðaliðum fyrir frábæran dag og sérstakar þakkir fá ÍRB og Reykjanesbær fyrir að taka á móti okkur í Vatnaveröld.
Takk fyrir og hlökkum til næsta sundárs!
