Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ísland - Færeyjar: Frábær helgi að baki

14.09.2026

Um liðna helgi fór fram vináttu- og landsliðsverkefni milli Íslands og Færeyja í sundi í Reykjanesbæ. Tuttugu efnilegustu sundmenn Íslands í Framtíðarhóp SSÍ tóku á móti jafnöldrum sínum frá Færeyjum til æfinga, keppni og samveru, og eftir spennandi sundmót í Vatnaveröld á laugardaginn stóð íslenska liðið uppi sem sigurvegari.

Helgin snerist hinsvegar um meira en bara keppni. Hóparnir æfðu saman, gistu saman í Holtaskóla og áttu ýmsar eftirminnilegar stundir saman, meðal annars sameiginlega ferð í Bláa Lónið á laugardagskvöldinu, þar sem þreyttir vöðvar fengu að slaka á eftir keppnisdaginn.

„Þetta var frábær helgi frá upphafi til enda. Krakkarnir stóðu sig frábærlega í lauginni, en það sem stendur upp úr er hversu vel þeim tókst að kynnast og mynda vináttu þvert á landamæri,“ segir Hrafnhildur Lúthersdóttir, verkefnastjóri hjá Sundsambandi Íslands.

Sundsamband Íslands þakkar Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar, Holtaskóla, Skólamat og öllum sjálfboðaliðum kærlega fyrir frábæra aðstoð við framkvæmd verkefnisins, sem og Svimjisambandi Føroya fyrir samstarfið. Stefnt er á að verkefnið verði áfram árlegur viðburður í uppbyggingarstarfi beggja landa.

Til baka