Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ísland og Færeyjar mætast í Reykjanesbæ um helgina

08.09.2026

Um helgina, 11.–13. september, fer fram spennandi verkefni þar sem tuttugu efnilegustu sundmenn Íslands í Framtíðarhópi SSÍ, fædd 2011–2013, taka á móti jafnöldrum sínum frá Færeyjum til keppni og samveru í Reykjanesbæ. Verkefnið er samstarf Sundsambands Íslands og Svimjisambands Føroya og er liður í að styrkja vinabönd milli þjóðanna og búa efnilegasta sundfólk landanna undir framtíðina.

Í fyrra fór íslenski hópurinn til Þórshafnar þar sem liðin kepptu og áttu saman eftirminnilega helgi. Nú er komið að Íslandi að taka á móti Færeyingum, og verður liðum beggja þjóða fagnað í Reykjanesbæ með stuðningi Íþróttabandalags Reykjanesbæjar (ÍRB).

Keppt verður í Vatnaveröld á laugardaginn í tveggja hluta stigamóti þar sem hvor þjóð sendir þrjá keppendur í hverja einstaklingsgrein og eitt lið í hverja boðsundsgrein. Áhersla er lögð á liðsheild fremur en einstaklingsárangur, enda er markmið verkefnisins ekki síst að efla samstöðu og vináttu á milli landanna tveggja. Liðin munu einnig æfa saman, borða saman og upplifa alls kyns skemmtun saman um helgina.

„Þetta er frábært tækifæri fyrir okkar efnilegasta sundfólk til að spreyta sig í alvöru landsliðsverkefni, kynnast jafnöldrum sínum frá Færeyjum og mynda vináttubönd sem endast lengur en bara helgina,“ segir Hrafnhildur Lúthersdóttir, verkefnastjóri afrekssviðs hjá Sundsambandi Íslands.

Sundsamband Íslands þakkar Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar, Holtaskóla, Blue Höllinni, og Skólamat kærlega fyrir aðkomu þeirra að verkefninu.

Til baka