Nýtt Íslandsmet á lokadegi EM50 í París
Íslenska karlasveitin í 4x100 metra fjórsundi setti nýtt Íslandsmet á lokadegi EM50 í París í morgun. Sveitin synti á 3:42.35 og bætti fyrra Íslandsmetið um 0.79 sekúndur.
Sveitina skipuðu þeir Guðmundur Leo Rafnsson, Einar Margeir Ágústsson, Birnir Freyr Hálfdánarson og Símon Elías Statkevicius.
Guðmundur hóf sundið með baksundsleggnum og bætti um leið sinn besta tíma í 100 metra baksundi. Hann kom í bakkann á 55.94 og bætti fyrra persónulega met sitt um þrjá hundraðshluta úr sekúndu.
Einar tók við í bringusundinu og synti á 1:01.38, Birnir fór flugsundslegginn á 54.27 og Símon kláraði sundið fyrir Ísland með 50.76 í skriðsundinu.
Saman komu þeir í bakkann á 3:42.35, en fyrra Íslandsmetið var 3:43.14, sett á Smáþjóðaleikunum 2025.
Guðmundur var ánægður með hvernig sveitin fór af stað og hvernig strákarnir fylgdu eftir.
„Ég ætlaði að byrja að rúlla snjóboltanum þannig að strákarnir myndu fá smá pepp í sig og komast undir þetta Íslandsmet, þannig það heppnaðist mjög vel.“
Markmiðið var skýrt hjá sveitinni og það náðist.
„Við gáfum allir okkar besta og erum sáttir að ná markmiðinu,“ sagði Einar.
Birnir var einnig hæstánægður með að fá að ljúka mótinu í boðsundi með félögum sínum.
„Þetta var frábært. Það er alltaf langskemmtilegast að keppa í boðsundi með strákunum. Þetta var bara geggjað.“
Sveitin hafnaði í 18. sæti af 19 sveitum, en lauk þar með keppni Íslendinga á mótinu með nýju Íslandsmeti.
Þar með hefur íslenska sundliðið lokið keppni á Evrópumeistaramótinu í 50 metra laug í París 2026.
Íslenski hópurinn átti fjölmörg góð sund á mótinu, þar á meðal persónuleg met og nú síðast nýtt Íslandsmet í boðsundi. Til hamingju með árangurinn í París!
