Íslendingarnir búnir með einstaklingsgreinar á EM50
Fjórir sundmenn kepptu í undanrásum á næstsíðasta degi Evrópumeistaramótsins í 50 metra laug í París í morgun. Þar með hafa allir íslensku keppendurnir lokið einstaklingsgreinum sínum á mótinu, en á morgun lýkur keppni Íslendinganna með 4x100 metra fjórsundi karla.
Símon Elías Statkevicius hóf keppni í 50 metra skriðsundi. Hann kom í bakkann á 22.81, sem er næstbesti tími hans í greininni og aðeins 0.14 sekúndum frá hans besta. Símon hafnaði í 57. sæti af 77 keppendum.
Símon var ánægður með sundið en hafði stefnt hærra.
„Smá svekkjandi, ég ætla ekki að ljúga. Ég gerði mitt besta og vildi ná þessu Íslandsmeti. Það hefur verið markmið í langan tíma. En það er bara áfram gakk.“
Hann hefur þó notið þess að fá að keppa á móti mörgum af bestu sundmönnum Evrópu í París.
„Þetta er mjög sterkt mót og maður er aðeins óvanur því að vera umkringdur þeim bestu í Evrópu. En það er alltaf gaman að læra af þeim.“
Guðmundur Leo Rafnsson keppti næst í 100 metra baksundi. Hann synti á 56.13, sem er næstbesti tími hans í greininni og aðeins 0.16 sekúndum frá hans besta. Guðmundur varð í 51. sæti af 66 keppendum.
„Ég ætlaði að fara undir 56, en þetta er næstbesti tíminn minn svo það er ekkert slæmt.“
Guðmundur horfir nú spenntur til boðsundsins á morgun.
„Ég er ótrúlega spenntur. Við erum með ótrúlega sterka sveit. Þetta verður bara mjög gaman.“
Birgitta horfir til næsta tímabils
Birgitta Ingólfsdóttir synti 50 metra bringusund á 32.74 og hafnaði í 38. sæti af 41 keppanda.
Birgitta var ekki ánægð með sundið en segir mikilvægt að taka jákvæða hluti með sér úr ferðinni og horfa fram á veginn.
„Mér hefur liðið betur. Þetta fór ekki alveg eins og ég ætlaði mér, en ég er bara þakklát fyrir að fá að vera hérna og synda með svona hröðu fólki.“
Birgitta hefur átt við meiðsli að stríða á tímabilinu og segir næsta tímabil snúast um að komast aftur í sitt besta form.
„Búin að vera mikil meiðsli á þessu tímabili. Nú er bara að reyna að koma mér aftur í gang. Þessi tími sem ég fór á sýnir ekkert fram á hvað ég get. Þetta kemur. Bara að vera jákvæð.“
Birgitta segir jafnframt mikla upplifun að fá að taka þátt í stórmóti með bestu sundmönnum Evrópu.
„Mér finnst ótrúlegt að vera hérna. Maður er að fá að sitja við hlið bestu sundmanna í heiminum, bara í rútunni. Mér finnst æðisleg tilfinning að fá að vera í sömu laug og þau.“
Birnir klárar einstaklingskeppnina
Birnir Freyr Hálfdánarson lauk einstaklingskeppninni fyrir Íslendingana þegar hann synti 200 metra fjórsund á 2:05.18. Tíminn var rúmri sekúndu frá Íslandsmeti hans og skilaði honum 44. sæti af 48 keppendum.
„Mér leið bara mjög vel. Þetta var mjög gaman. Smá frá besta, en heilt yfir fínt,“ sagði Birnir.
Hann segir upplifunina af því að keppa á stórmóti í Evrópu öðruvísi en að keppa hér heima.
„Maður þekkir alla á Íslandi og kemur hingað og maður er bara pínulítill miðað við hina. En það má ekkert hugsa þannig.“
Birnir er, líkt og félagar hans, orðinn spenntur fyrir lokadeginum.
„Bara mjög spenntur. Alltaf gaman að keppa með strákunum og að taka þátt í boðsundi fyrir Ísland.“
Þar með hefur allt okkar sundfólk lokið einstaklingsgreinum sínum á EM50 í París. Lokadagurinn verður þó stór fyrir íslenska liðið þegar karlasveitin keppir í 4x100 metra fjórsundi.
