Tvær bætingar á fimmta degi EM50
Fimm Íslendingar kepptu í undanrásum á fimmta degi Evrópumeistaramótsins í 50 metra laug í París í morgun. Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Einar Margeir Ágústsson bættu bæði sín persónulegu met og Einar hefur þar með bætt sig í öllum sínum einstaklingsgreinum á mótinu.
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Vala Dís Cicero hófu keppni íslenska liðsins þegar þær syntu báðar í sama riðli í 50 metra skriðsundi.
Jóhanna kom önnur í bakkann á 25.66 og bætti þar með eigið persónulegt met um einn hundraðasta úr sekúndu. Hún hafnaði í 32. sæti í heildina.
Vala synti á 26.82 og varð í 47. sæti af 51 keppanda.
Jóhanna var ánægð með að ná persónulegu meti á mótinu:
„Ég er sátt að hafa sett allavega eitt PB. Góður hópur, góð laug, gott hótel. Allt flott hérna.“
Einar búinn að bæta sig í öllum greinum
Þeir Einar Margeir Ágústsson og Snorri Dagur Einarsson kepptu næst í 50 metra bringusundi.
Einar hélt áfram frábærri frammistöðu sinni á mótinu og kom í bakkann á 27.77, sem er nýtt persónulegt met. Hann bætti sig um tólf hundruðustu úr sekúndu og hefur því nú sett persónulegt met í öllum þremur greinum sínum á EM50.
Einar hafnaði í 30. sæti af 67 keppendum.
Snorri synti á 27.97 og varð í 42. sæti.
Einar var að vonum ánægður með árangurinn og horfir nú til boðsundsins á sunnudag.
„Mjög sáttur með að bæta mig í öllum greinum, get ekki verið meira þakklátur. Ótrúlega stemmdur fyrir boðsundið. Ég held þetta verði bara geggjað hjá okkur, held við séum bara allir tilbúnir í þetta.“
Hólmar lauk einstaklingskeppni
Hólmar Grétarsson átti síðasta sund morgunsins fyrir íslenska liðið þegar hann keppti í 200 metra flugsundi. Hann synti á 2:04.68 og hafnaði í 35. sæti.
Hólmar hafði stefnt á að bæta Íslandsmetið í greininni en náði ekki alveg þeim markmiðum sem hann hafði sett sér.
„Ég ætlaði mér að bæta Íslandsmetið, en ég bara gerði mitt besta. Það er geggjað að keppa hérna,“ sagði Hólmar eftir sundið.
Þar með lauk einstaklingskeppni Hólmars á mótinu, en hann hefur meðal annars keppt í 400 metra fjórsundi og 200 metra flugsundi í París.
Síðustu einstaklingsgreinarnar á morgun
Á morgun, laugardag, fara fram síðustu einstaklingsgreinar íslenska liðsins á EM50. Símon Elías Statkevicius keppir í 50 metra skriðsundi, Guðmundur Leo Rafnsson í 100 metra baksundi, Birgitta Ingólfsdóttir í 50 metra bringusundi og Birnir Freyr Hálfdánarson í 200 metra fjórsundi.
Á sunnudag lýkur svo keppni íslenska liðsins þegar karlasveitin keppir í 4x100 metra fjórsundi.
