Beint á efnisyfirlit síðunnar

Guðmundur með bætingu í 50 metra baksundi

13.08.2026

Guðmundur Leo Rafnsson var eini Íslendingurinn sem keppti í undanrásum á fjórða degi Evrópumeistaramótsins í 50 metra laug í París í morgun. Guðmundur kom fyrstur í bakkann í sínum riðli og bætti sitt persónulega met.

Guðmundur synti á 26.19 og bætti fyrri tímann sinn, sem var 26.27. Hann hafnaði í 65. sæti af 72 keppendum.

Þrátt fyrir bætinguna var Guðmundur örlítið svekktur eftir sundið, enda hafði hann augastað á Íslandsmetinu fyrir mótið.

„Þetta er svolítið súrsætt sund. Ég er ótrúlega sáttur með að bæta mig á stórmóti, það er ekki gefins og ég er ótrúlega glaður með það. En ég var að horfa á Íslandsmetið komandi inn í þetta tímabil, þannig það er svolítið svekkjandi að ná þessu ekki. En ég er nær en ég hef nokkurn tímann verið áður, þannig þetta er allt á leiðinni í rétta átt.“

Guðmundur hefur nú lokið tveimur einstaklingsgreinum á mótinu, en hann synti 200 metra baksund á öðrum degi mótsins. Næst syndir hann 100 metra baksund, sem hann segir að sé allt annað sund.

„Ég veit að ég er með fínasta þol. Þótt það klikkaði smá í lokin á 200, þá er 100 allt annar leikur. Ég mæti fullur sjálfstrausts, ég veit hvað ég er að fara að gera.“

Þar með lauk keppni Íslendinga á fjórða degi EM50. Á morgun verður nóg um að vera hjá íslenska hópnum þegar fimm sundmenn keppa í undanrásum.

Vala Dís Cicero og Jóhanna Elín Guðmundsdóttir synda 50 metra skriðsund, Einar Margeir Ágústsson og Snorri Dagur Einarsson keppa í 50 metra bringusundi og Hólmar Grétarsson syndir 200 metra flugsund.

Keppni hefst klukkan 9:30 að staðartíma í París.

Til baka