Beint á efnisyfirlit síðunnar

Einar bætti sig aftur á þriðja degi EM50

12.08.2026

Þrír íslenskir sundmenn kepptu í undanrásum á þriðja degi Evrópumeistaramótsins í 50 metra laug í París í morgun. Einar Margeir Ágústsson hélt áfram að bæta sig og setti annað persónulegt met á þessu móti þegar hann synti 200 metra bringusund á 2:15.16.

Vala Dís Cicero hóf keppni íslenska hópsins þegar hún synti 200 metra skriðsund. Hún kom í bakkann á 2:05.34 og hafnaði í 43. sæti af 45 keppendum.

„Þetta var frekar langt frá mínu besta. Mér leið vel í sundinu sjálfu, það var skemmtilegt, en þetta var ekki tíminn sem ég vildi. Ég mun skoða hvað ég get gert betur fyrir næsta sund,“ sagði Vala um sundið.

Birnir Freyr Hálfdánarson keppti næst í 100 metra flugsundi. Hann byrjaði vel og var meðal fyrstu manna eftir fyrri 50 metrana, en fann fyrir þreytu þegar leið á sundið. Hann kom í bakkann á 54.38, og hafnaði í 55. sæti af 66 keppendum.

„Mér leið bara ágætlega. Tíminn aðeins hægari en ég átti von á. Eitthvað sem ég þarf bara að skoða með þjálfaranum. Ég dó örlítið meira en ég ætlaði á síðustu 50 metrunum,“ sagði Birnir eftir sundið.

Einar bætti sig á ný

Einar átti svo síðasta sund Íslendinga í morgun þegar hann synti 200 metra bringusund. Hann kom í bakkann á 2:15.16 og bætti þar með sinn besta tíma um 0.82 sekúndur.

Einar var meðal þeirra fyrstu í sundinu alveg frá fyrstu metrunum og hélt jöfnum og sterkum takti í gegnum allt sundið. Hann kom fjórði í bakkann í sínum riðli, aðeins einum hundraðshluta úr sekúndu á eftir þriðja sætinu, og hafnaði í 32. sæti í heildina.

„Mjög þreyttur, en mjög sáttur með að ná þessari bætingu,“ sagði Einar eftir sundið.

Hann var ánægður með hvernig hann útfærði sundið og sérstaklega hversu rólegur hann var í fyrri hlutanum.

„Ég náði að vera mjög yfirvegaður fyrsta helminginn af sundinu. Náði að berjast alveg vel seinni helminginn.“

Einar hefur því nú bætt sig í báðum greinum sem hann hefur keppt í á mótinu og segir mikilvægt að njóta ferðarinnar um leið og hann keppir á þessu Evrópumeistaramóti.

„Ég er ekki bara að hugsa um þetta sund, bara að njóta þess að lifa. Bara ‘enjoy the process'.“

Þar með lauk keppni Íslendinga á þriðja degi EM50. Á morgun tekur Guðmundur Leo Rafnsson við keflinu þegar hann syndir 50 metra baksund. Sundið hefst klukkan 8:19 að íslenskum tíma.

Til baka