Beint á efnisyfirlit síðunnar

Guðmundur aðeins ellefu hundruðustu frá sínu besta á öðrum degi EM50

11.08.2026

Þrír Íslendingar kepptu í undanrásum á öðrum degi Evrópumeistaramótsins í 50 metra laug í París í morgun. Guðmundur Leo Rafnsson átti afar öflugt sund í 200 metra baksundi og synti aðeins ellefu hundruðustu úr sekúndu frá sínum besta tíma.

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir reið á vaðið fyrir íslenska liðið þegar hún keppti í 50 metra flugsundi. Hún synti á 28.02 og varð í 50. sæti af 51 keppanda.

Næst kom Birgitta Ingólfsdóttir, sem var að keppa í fyrsta sinn á mótinu. Hún synti 100 metra bringusund á 1:12.66 og hafnaði í 42. sæti af 45 keppendum.

Að lokum stakk Guðmundur sér ofan í laugina í 200 metra baksundi, sinni aðalgrein á mótinu.

Guðmundur fór mjög hratt af stað, var á undan sínum besta tíma eftir fyrstu 100 metrana og leiddi riðilinn. Hann hélt áfram af miklum krafti og var enn með þeim fyrstu í riðlinum þegar 150 metrar voru að baki. Á síðustu 50 metrunum kom aðeins þreyta í líkamann og hann kom í bakkann á 2:01.42, aðeins ellefu hundruðustu úr sekúndu frá sínum besta tíma. Hann hafnaði í 33. sæti af 39 keppendum.

Þrátt fyrir góðan tíma var Guðmundur gjörsamlega búinn eftir sundið.

„Mér líður bara ömurlega, í rauninni, þó þetta var fínasta sund. Líkaminn er alveg búinn, ég skildi allt eftir í lauginni.“

Guðmundur segir að ætlunin hafi verið að fara enn hraðar til baka eftir fyrstu 100 metrana og hann hafi fundið vel fyrir því í dag hversu mikið hann hafði lagt á sig.

„Við vorum búin að æfa fyrir þetta, að koma miklu hraðar til baka. Mér leið vel fyrstu 150, síðan slökknaði bara á líkamanum. En það er bara fínt að læra eitthvað af þessu, búinn að læra mikið á þessu tímabili.“

Þar með lauk keppni Íslendinga í undanrásum á öðrum degi EM50, en áfram verður keppt í París á morgun. Þá eiga þrír Íslendingar sæti í undanrásum: Vala Dís Cicero í 200 metra skriðsundi, Birnir Freyr Hálfdánarson í 100 metra flugsundi og Einar Margeir Ágústsson í 200 metra bringusundi.

Snæfríður dregur sig úr keppni

Snæfríður Sól Jórunnardóttir hefur ákveðið að draga sig úr keppni það sem eftir lifir móts vegna veikinda.

Snæfríður keppti í 100 metra skriðsundi á fyrsta degi mótsins og átti einnig eftir að keppa í 200 og 50 metra skriðsundi.

Við óskum Snæfríði góðs bata og vonumst til að sjá hana aftur í lauginni fljótlega.

Til baka