Átta Íslendingar kepptu á fyrsta degi EM50 í París
Evrópumeistaramótið í 50 metra laug hófst í morgun í París og tóku átta íslenskir sundmenn þátt í fyrsta morgunhlutanum. Einar Margeir Ágústsson átti sterkasta sund Íslendinganna þegar hann bætti sinn besta tíma í 100 metra bringusundi.
Mótið hófst á 400 metra fjórsundi karla þar sem Hólmar Grétarsson synti í fyrsta riðli. Hólmar byrjaði sundið vel og hélt góðum og jöfnum hraða í gegnum sundið. Hann kom í bakkann á 4:29.65 og hafnaði í 23. sæti af 26 keppendum. Eftir sundið var Hólmar léttur og sagði að laugin í París væri: „Ein besta laug sem ég hef synt í.“
Þrjár íslenskar sundkonur tóku þátt í 100 metra skriðsundi. Jóhanna Elín Guðmundsdóttir synti á 56.79, Vala Dís Cicero á 56.95 og Snæfríður Sól Jórunnardóttir á 55.72.
Snæfríður varð þar með best Íslendinganna í greininni og hafnaði í 35. sæti af 54 keppendum. Jóhanna varð í 46. sæti og Vala Dís í 47. sæti.
Snæfríður var ekki nógu sátt við sinn árangur eftir sundið: „Þetta var ekki nógu gott. Svekkjandi.“ En hafði þetta að segja um markmið fyrir næstu grein: „Reyna að gera mitt besta.“ Hinsvegar var Vala ánægð með sitt sund: „Mér líður bara mjög vel. Ég er spennt fyrir næstu greinum og er ánægð.“
Í 50 metra flugsundi karla voru þeir Símon Elías Statkevicius og Birnir Freyr Hálfdánarson saman í öðrum riðli. Birnir kom í bakkann á 24.60 og Símon á 24.70. Birnir hafnaði í 68. sæti og Símon í 69. sæti af 78 keppendum. „Það er alltaf gaman að keppa með Símoni og sérstaklega á þessum vettvangi sem við erum á,“ sagði Birnir. Og Símon hafði þetta að segja eftir sundið: „Fínt að fá eitt icebreaker-sund fyrir 50 metra skriðsundið. Gott að fá að fara í gegnum allt og testa fyrir aðalgreinina.“
Að lokum syntu Einar Margeir Ágústsson og Snorri Dagur Einarsson 100 metra bringusund.
Einar átti glæsilegt sund og bætti sinn besta tíma þegar hann synti á 1:00.87. Hans besti tími var 1:01.23 frá því í fyrra og þar með bætti hann sig um tæpa hálfa sekúndu. Einar hafnaði í 33. sæti af 71 keppanda og átti þar með besta árangur dagsins í einstaklingsgrein. Hann var sáttur við sinn árangur: „Ég vildi bara vera nálægt mínu besta og koma til baka frá meiðslum, en ég er bara ógeðslega sáttur með þetta. Mér leið ógeðslega vel í fyrri 50 metrunum, léttasti fyrri 50 sem ég hef tekið. Síðan var ég einhvern veginn bara dauður seinni 50, en ég náði að halda aðeins í og ná þessari bætingu.“
Snorri byrjaði einnig mjög vel í sínu sundi og hélt í við hina í riðlinum í fyrri hluta sundsins. Hann kom í bakkann á 1:02.20 og hafnaði í 52. sæti.
Þessi fyrsti keppnisdagur gaf íslenska hópnum góða byrjun á mótinu, þar sem átta sundmenn fengu tækifæri til að spreyta sig gegn sterkustu sundmönnum Evrópu. En það er nóg um að vera og fleiri íslenskir sundmenn eiga eftir að stinga sér ofan í laugina á næstu dögum.
Keppni heldur áfram á morgun þegar Jóhanna Elín Guðmundsdóttir keppir í 50 metra flugsundi, Birgitta Ingólfsdóttir í 100 metra bringusundi og Guðmundur Leo Rafnsson í 200 metra baksundi.
