Tíu íslenskir sundmenn í eldlínunni á EM í París
EM í sundi hefst í París á mánudaginn og verða tíu íslenskir sundmenn á meðal keppenda. Liðið er mætt út til að undirbúa sig, þar sem átta sundmenn stinga sér til sunds strax á fyrsta degi mótsins. RÚV sýnir frá öllum hlutum mótsins, morgunhlutana klukkan 7:30 og úrslitahlutana klukkan 16:30 að íslenskum tíma.
Evrópumeistaramótið í 50 metra laug stendur yfir frá 10. til 16. ágúst í Centre Aquatique Olympique í Saint-Denis, sundhöllinni sem var byggð sérstaklega fyrir Ólympíuleikana í París 2024.
Íslenski hópurinn er fjölmennur og alls taka tíu sundmenn þátt í einstaklingsgreinum. Þá verður einnig íslensk karlasveit í 4x100 metra fjórsundi.
Snæfríður Sól Jórunnardóttir verður að öllum líkindum sú sem verður hvað mest fylgst með af íslenska liðinu. Hún varð í sjötta sæti í 200 metra skriðsundi á EM í Lublin í fyrra og setti þar nýtt Íslandsmet í undanúrslitum.
Vala Dís Cicero hefur einnig verið áberandi í sömu grein. Hún setti unglingamet í 200 metra skriðsundi fyrr á árinu og kemur beint frá EM unglinga þar sem hún synti sig inn í undanúrslit.
Þá eru fleiri í íslenska hópnum sem hafa verið að bæta sig og koma til Parísar með Íslandsmet og persónuleg markmið í farteskinu. Með sterkum hópi eigum við því von á spennandi viku þar sem möguleiki er að fleiri met falli.
Hér á eftir verður farið yfir keppni Íslendinganna dag fyrir dag, en heildaráætlun ásamt lista yfir hópinn má sjá neðst í greininni.
Fyrsti dagur mótsins verður viðburðaríkur hjá íslenska liðinu en átta sundmenn hefja þá keppni: Hólmar Grétarsson, Birnir Freyr Hálfdánarson, Símon Elías Statkevicius, Snæfríður Sól Jórunnardóttir, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, Vala Dís Cicero, Einar Margeir Ágústsson og Snorri Dagur Einarsson.
Hólmar keppir fyrstur Íslendinga í 400 metra fjórsundi.
Þar á eftir koma Birnir og Símon í 50 metra flugsundi.
Skytturnar þrjár, Snæfríður, Jóhanna og Vala, keppa síðan allar í 100 metra skriðsundi, áður en Einar og Snorri enda morgunhlutann á 100 metra bringusundi.
Á þriðjudeginum keppir Jóhanna í sinni annarri grein, en Birgitta Ingólfsdóttir og Guðmundur Leo Rafnsson stinga sér í laugina í fyrsta sinn á mótinu. Þar með hafa allir íslensku sundmennirnir hafið keppni á EM50 2026.
Jóhanna keppir í 50 metra flugsundi, Birgitta keppir í 100 metra bringusundi, og Guðmundur í 200 metra baksundi.
Fjórir sundmenn keppa á miðvikudeginum. Snæfríður og Vala keppa í 200 metra skriðsundi, Birnir í 100 metra flugsundi, og Einar í 200 metra bringusundi.
Fimmtudagurinn verður „rólegur“ miðað við hina dagana þar sem Guðmundur Leo er eini Íslendingurinn sem keppir í morgunhlutanum. Hann keppir þó í sínu hraðasta sundi, 50 metra baksundi, þar sem hann syndir vonandi ekki lengur en í 27 sekúndur.
Það mega því allir vera límdir við skjáinn og spenntir í tæpar 30 sekúndur á fimmtudaginn á RÚV. Svo má halda áfram að vinna.
Á föstudeginum keppa sex íslenskir sundmenn, þar af fimm sem ljúka einstaklingskeppni sinni í undanrásum á mótinu. Vala, Snæfríður og Jóhanna keppa í 50 metra skriðsundi, Einar og Snorri í 50 metra bringusundi og Hólmar klárar sitt síðasta einstaklingssund í undanrásum þegar hann syndir 200 metra flugsund.
Næstsíðasti keppnisdagurinn, laugardagurinn, verður einnig viðburðaríkur. Símon byrjar hlutann á því að synda 50 metra skriðsund. Guðmundur Leo er næstur í 100 metra baksundi og Birgitta þar á eftir í 50 metra bringusundi. Birnir klárar svo fyrir Íslendingana þennan morguninn þegar hann keppir í 200 metra fjórsundi.
Síðasti dagurinn verður frábrugðinn hinum þar sem íslenska landsliðið verður með karlasveit í 4x100m fjórsund boðsundi. Það verður spennandi að sjá hvað strákarnir geta gert þegar íslenska liðið syndir sitt síðasta sund á Evrópumeistaramótinu í París.
Íslenska sundfólkið mætir því til Parísar með fjölbreytt prógramm og keppni frá fyrsta degi til þess síðasta. Nú er því bara að stilla vekjaraklukkuna og fylgjast með þegar íslensku sundmennirnir taka sín fyrstu sundtök í sundhöllinni í Saint-Denis.
Íslenski hópurinn sem tekur þátt í Evrópumeistaramótinu:
-
Birgitta Ingólfsdóttir (50m og 100m bringa)
-
Birnir Freyr Hálfdánarson (50m og 100m flug, 200m fjór)
-
Einar Margeir Ágústsson (50m, 100m og 200m bringusund)
-
Guðmundur Leo Rafnsson (50m, 100m og 200m baksund)
-
Hólmar Grétarsson (200m flug og 400m fjór)
-
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir (50m og 100m skrið, 50m flug)
-
Snorri Dagur Einarsson (50m og 100m bringa)
-
Snæfríður Sól Jórunnardóttir (50m, 100m og 200m skrið)
-
Símon Elías Statkevicius (50m skrið og 50m flug)
-
Vala Dís Cicero (50m, 100m og 200m skrið)
Dadó Fenrir Jasminuson er þjálfari hópsins og Eyleifur Jóhannesson er fararstjóri og yfirþjálfari.
Með hópnum eru einnig Hólmfríður Hilmarsdóttir, nuddari, Steindór Gunnarsson, þjálfari, Ólafur Árdal Sigurðsson, sem sér um fjölmiðlun, og dómararnir Ingibjörg Ýr Pálmadóttir og Ragnheiður Birna Björnsdóttir.
Heildaráætlun
Morgunhlutar byrja kl 9:30 CEST, úrslitahlutar byrja kl 18:30 CEST
Mánudagur 10. ágúst
400m fjórsund kk: Hólmar
50m flugsund kk: Birnir, Símon
100m skriðsund kvk: Snæfríður, Jóhanna, Vala
100m bringusund kk: Snorri, Einar
Þriðjudagur 11. ágúst
50m flugsund kvk: Jóhanna
100m bringusund kvk: Birgitta
200m baksund kk: Guðmundur
Miðvikudagur 12. ágúst
200m skriðsund kvk: Snæfríður, Vala
100m flugsund kk: Birnir
200m bringusund kk: Einar
Fimmtudagur 13. ágúst
50m baksund kk: Guðmundur
Föstudagur 14. ágúst
50m skriðsund kvk: Vala, Jóhanna, Snæfríður
50m bringusund kk: Einar, Snorri
200m flugsund kk: Hólmar
Laugardagur 15. ágúst
50m skriðsund kk: Símon
100m baksund kk: Guðmundur
50m bringusund kvk: Birgitta
200m fjórsund kk: Birnir
Sunnudagur 16. ágúst
4x100m fjórsund kk: Ísland
Minnum á að hægt er að horfa á RÚV í beinni, en einnig verður hægt að horfa hér.
Fylgist með á samfélagsmiðlum SSÍ þar sem þið fáið líka upplýsingar beint í æð.
