Íslandsmótið í Víðavatnssundi fór fram í gær
Íslandsmótið í víðavatnssundi fór fram í Nauthólsvík
Íslandsmótið í víðavatnssundi fór fram í gær, miðvikudag, í Nauthólsvík. Alls tóku 21 keppandi þátt í mótinu og var keppt í þremur vegalengdum; 3 km, 2 km og 1 km.
Þrátt fyrir rigningu og nokkrar vindhviður lét sundfólkið veðrið ekki aftra sér og ríkti góð stemning í Nauthólsvíkinni.
Á Íslandsmótinu eru árlega krýnd sunddrottning og sundkóngur víðavatnssundsins. Titlana hljóta sá karl og sú kona sem ljúka 3 km sundinu án galla á besta tíma. Í ár voru það Svava Björg Lárusdóttir, sem synti á tímanum 43:21, og Raúl Rodriguez Marcos, sem kom í mark á 53:02. Við óskum þeim innilega til hamingju með titlana.
Í 3 km sundi í galla sigraði Jaime Piqueras í karlaflokki á tímanum 52:57.
Í 2 km sundinu var aðeins einn keppandi, Bethany Marguerite Bronkema, sem lauk sundinu á 39:44.
Í 1 km sundi án galla vann Ásberg Halldór Hansson gull í flokki karla 16–34 ára á tímanum 15:42. Steinn Jóhannsson sigraði í flokki karla 50–64 ára á 15:53. Í kvennaflokki 16–34 ára vann Judith Schuijs gull á 17:43, en Sigríður Þorgeirsdóttir sigraði í flokki 65 ára og eldri á tímanum 35:07.
Í 1 km sundi í galla sigraði Guðmundur Kári Þorgrímsson í karlaflokki á tímanum 21:56. Í kvennaflokki stóð Sachi Otsuka uppi sem sigurvegari á 25:16. Sachi er frá Japan og var þetta í fyrsta sinn sem hún synti í Norður-Atlantshafinu.
