Sumarlokun og framundan í september
20.07.2026
Til baka
Skrifstofa Sundsambands Íslands verður lokuð frá þriðjudeginum 21. júlí – 1. september.
Ef þið þurfið nauðsynlegar upplýsingar á meðan skrifstofan er lokuð, er hægt að hafa samband við:
- Björn Sigurðsson, formann SSÍ bjorn@autotrade.is eða í síma 6969400
Það sem er framundan hjá okkur í september:
- Framtíðarhópur SSÍ mun keppa við lið Færeyinga í Reykjanesbæ 11- 13 september. Hópurinn hefur verið valinn og allar upplýsingar verið sendar til þjálfara.
- Formannafundur/ þjálfarafundur verður haldinn 17.september í húsnæði ÍSÍ. Þessi fundur verður upphafið á sameiginlegri stefnumótun hreyfingarinnar. Endilega takið daginn frá, Fundurinn stendur frá 17:30 – 21:30 og það er mjög mikilvægt að félögin sendi amk einn stjórnarmann og einn þjálfara til að taka þátt í stefnumótun hreyfingarinnar.
- Bikarkeppni SSÍ verður haldin í Reykjanesbæ 26. September. Í kjölfarið verður lokahóf þar sem bikarmeistarar verða krýndir, sundfólk ársins 2026 valið, o.s.frv.
Frekari upplýsingar um Bikar er hægt að fá með því að senda á Leif Guðna Grétarsson – leifurgudni@iceswim.is - Atburðadagatal næsta sundárs má finna hér
- Lágmörk og viðmið næsta sundárs:
Sjá nánar hér: Lágmörk og viðmið - Reikningar vegna meðlimagjalda og keppnispassa hafa verið sendir út og er eindagi 1. september.
Um leið og við þökkum ykkur innilega fyrir gott sundár þá biðjum við ykkur um að senda sundfólkinu sem keppir á EM50 dagana 10 – 16 ágúst góða strauma.
Þar eigum við 10 sundmenn, sem er frábær árangur.
Hlökkum til að hitta ykkur öll hress og kát í september eftir sumarfrí.
.jpg?proc=150x150)