Beint á efnisyfirlit síðunnar

Næst síðasti dagur á EMU

11.07.2026
Næst síðasti dagur á EMU hófst í morgun en við áttum þrjá keppendur í þessum undanrásum.  Denas Kazulis synti 100m skriðsund á tímanum 51,76  sem er aðeins 0.34 sekúndum frá sínum besta tíma,          
Karl Björnsson stakk sér næstur, og synti hann 100 bringusund á tímanum 1:07.54. Hann hafnaði þar með í 48. sæti.
Vala Dís synti 50 flugsund á 28.10, og hafnaði í 27. sæti.
Á morgun er síðasti dagur EMU, en þá synda þau Sólveig F. Hákonardóttir og Magnús V. Jónsson, en þau stinga sér bæði til sunds í 400 skriðsundi
Til baka