Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vala, Sólveig og Hólmar syntu í morgun á EMU

10.07.2026

Fjórði dagur á EMU hófst með 100m skriðsundi hjá þeim Völu Dís Cicero og Sólveigu Freyju Hakonardóttur.   Vala varð í 27 sæti á tímanum 57.05, hennar besti tími er 56,38.  Sólveig Freyja synti á tímanum 1:01,12 sem er aðeins frá hennar besta tíma 59.53.

Hólmar Grétarsson synti 400m fjórsund á tímanum 4:31,94 og varð í 19 sæti rétt um 4 sekúndur frá sínum besta tíma 4;27,37. Hólmar hefur nú lokið keppni á EMU og nú hefst lokaundirbúningur hans  fyrir EM50 sem fram fer í París í ágúst. 

Á morgun laugardag mun Karl Björnsson synda 100m bringusund og Denas Kazulis 100m skriðsund

Til baka