Beint á efnisyfirlit síðunnar

SSÍ styrkir afreksstarfið með nýju skipulagi

10.07.2026   

Í kjölfar þess að Eyleifur Jóhannesson sagði starfi sínu lausu sem afreksstjóri Sundsambands Íslands (SSÍ),hefur farið fram umfangsmikil vinna við að móta nýtt skipulag yfir afreksstarf sambandsins.

Í þeirri vinnu  var lögð rík áhersla á að tryggja áfram það öfluga starf sem byggt hefur verið upp á síðustu sex árum og varðveita þá fagmennsku og þekkingu sem einkennt hefur landsliðsstarf SSÍ.

„Við erum Eyleifi afar þakklát fyrir það góða  starf sem hann hefur unnið fyrir sundhreyfinguna undanfarin sex ár. Undir hans stjórn hefur afreksstarfið tekið stór skref fram á við og því var okkur mjög mikilvægt að tryggja að sú uppbygging héldi áfram, “segir Björn Sigurðsson, formaður SSÍ.

Í stað þess að fela einum einstaklingi alla ábyrgð afreksstarfsins var ákveðið að skipta verkefnum og ábyrgð á milli þriggja reynslumikilla einstaklinga sem saman mynda sterkt teymi með skýra verkaskiptingu.

Eyleifur Jóhannesson mun áfram leiða efsta þrep afreksstarfs SSÍ og sinna undirbúningi og eftirfylgni afrekssundfólks Íslands á alþjóðlegum vettvangi.

Steindór Gunnarsson tekur við ábyrgð á miðþrepi afreksstarfsins og mun leiða og halda utan um  Evrópumeistaramót unglinga (EMU), Norðurlandameistaramótið (NM) og Smáþjóðaleikana, auk þess að vinna með sundfólki og þjálfurum.

Hrafnhildur Lúthersdóttir hefur jafnframt verið ráðin til starfa hjá SSÍ. Hún mun leiða framtíðarhóp og yngstu afrekshópa sambandsins, þar á meðal verkefni tengd Norðurlandamóti æskunnar (NÆM). Auk þess mun hún starfa á skrifstofu SSÍ og sinna miðlun og samskiptum.

„Við erum sérstaklega ánægð með að Eyleifur verði áfram hluti af afreksteyminu. Um leið er það mikill styrkur að fá Steindór og Hrafnhildi til liðs við okkur. Saman mynda þau öflugt teymi sem mun byggja áfram á þeim góða grunni sem hefur verið lagður og efla afreksstarf SSÍ enn frekar, “segir Björn.

Með þessari nýju skipan verður afreksstarf SSÍ byggt upp í þremur skýrum þróunarþrepum sem vinna náið saman. Aftur á móti mun,áframhaldandi vinna að mótun afreksstarfs til framtíðar halda áfram og stefnt er að því að kynna nýja afreksstefnu á næsta Sundþingi, sem mun tryggja áframhaldandi uppbyggingu sundhreyfingarinnar. 

„Við horfum björtum augum til framtíðar. Með þessari skipan teljum við okkur vera í sterkri stöðu til að halda áfram þeirri vegferð sem hafin er og skapa íslensku sundfólki enn betri tækifæri til árangurs á alþjóðavettvangi, “ segir Björn Sigurðsson að lokum.

Til baka