Hólmar og Denas syntu í morgun á EMU
09.07.2026
Til baka
Þriðji dagur á EMU hófst í morgun og áttum við tvo keppendur í þessum hluta. Fyrstur til að stinga sér til sunds var Hólmar Grétarsson þegar hann synti 100m flugsund, hann synti á tímanum 56,54 sem er aðeins frá hans besta tíma 55.85. Hólmar varð í 55. sæti. Denas Kazulis synti 50m skriðsund á tímanum 23.70 sem er örlítið frá hans besta tíma 23,62. Denas varð í 50 sæti.
Á morgun föstudag synda þær Vala og Sólveig 100m skriðsund og Hólmar 400m fjórsund.
