Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vala Dís komst í undan úrslit í 200m skriðsundi á EMU

07.07.2026

Evrópumeistarmót unglinga hófst í Munchen í morgun og áttum við 5 sundmenn í undanrásum á þessum fyrsta degi og bar þar hæst að Vala Dís Cicero synti sig inn í undanúrslit í 200m skriðsundi þegar hún synti á tímanum 2:03,64. Vala synti rétt í þessu í undanúrslitum og varð í 14 sæti á tímanum 2:02,77 sem er um sekúndu frá hennar besta tíma, fínn árangur hjá Völu.

Hólmar Grétarsson synti 200 flugsund,í morgun á tímanum 2:04.03 tæpri sekúndu frá sínum besta tíma og hafnaði í 25. Sæti.

Karl Björnsson fór 50m bringusund í morgun á tímanum 29,67, en hans besti tími er 29,25, hann varð í 37 sæti.

Sólveig Freyja Hákonardóttir synti 200m skriðsund í morgun á tímanum 2:08,77 sem er aðeins frá hennar besta tíma,2:05,47 og varð í 46 sæti.

Magnús Víðir Jónsson synti einnig 200m skriðsund á tímanum 1:55,51 og var alveg við sinn besta tíma 1:55,08, hann varð í 52 sæti.

 

Fínn árangur hjá sundfólkinu í dag og við hlökkum til að fylgjast með þeim áfram en næst eigum við keppanda á miðvikudaginn, þegar Vala Dís syndir 50m skriðsund.

 

Hægt er að fylgjast með úrslitum hér: https://events.europeanaquatics.org/Junior-Swimming-Munich-2026/schedule-results/#/sports-schedule/SWM/*

 

Streymi frá mótinu er hér: https://www.euroaquaticstv.com/en/home?ups=12&up=0

Til baka