Beint á efnisyfirlit síðunnar

Evrópumeistaramót unglinga 2026 hefst í fyrramálið

06.07.2026

Evrópumeistaramót unglinga hefst í fyrramálið í Ólympíulauginni í Munchen í Þýskalandi og mun það standa fram á næsta sunnudag, 12. júlí.

Sundsambandið sendir að þessu sinni 6 keppendur á mótið en þau eru:

Denas Kazulis, Íþróttabandalag Reykjanesbæjar

Hólmar Grétarsson, Sundfélag Hafnarfjarðar

Karl Björnsson, Sundfélag Hafnarfjarðar

Magnús Víðir Jónsson, Sundfélag Hafnarfjarðar

Sólveig Freyja Hákonardóttir, Sundfélag Hafnarfjarðar

Vala Dís Cicero, Sundfélag Hafnarfjarðar

 

Með keppendum fara þau;

Bjarney Guðbjörnsdóttir Fararstjóri

Dadó Fenrir Jasminuson Þjálfari

Hlynur Skagfjörð Sigurðsson Sjúkraþjálfari

 

Sundsambandið sendir einnig dómara á mótið en Tómas Gísli Guðjónsson mun standa vaktina á bakkanum þessa vikuna.

 

Við eigum keppendur strax í fyrramálið,7. júlí en þá syndir Hólmar 200m flugsund, Karl 50m bringusund, Magnús 200m skriðsund, Sólveig 200m skriðsund og Vala 200m skriðsund.

 

Miðvikudagur:

Vala Dís 50m skriðsund

Fimmtudagur

Denas 50m skriðsund

Föstudagur

Hólmar 400m fjórsund

Vala Dis 100m skriðsund

Laugardagur

Denas 100m skriðsund

Karl 100m bringusund

Sunnudagur

Sólveig 400m skriðsund

Vala Dís 400m skriðsund

 

Við hlökkum til að fylgjast með sundfólkinu næstu daga, en hægt er að fylgjast með úrslitum

Hér https://events.europeanaquatics.org/Junior-Swimming-Munich-2026/schedule-results/#/sports-schedule/SWM/*  og á European aquitcs TV https://www.euroaquaticstv.com/en/home?ups=12&up=0

 

Til baka