Beint á efnisyfirlit síðunnar

NÆM 2026

30.06.2026Norðurlandameistaramóti Æskunnar fór fram í Osló 29 - 30.júní Keppt var ì tveimur hlutum ì gær þann 29.júní og einum hluta í dag, Að þessu sinni áttum við þrjá keppendur à mòtinu.

Keppendur voru þau Alexander Ari Andrason úr Átmanni ,Alicja Julia Kempisty og Auguste Balciunaite úr SH og með þeim var þjálfarinn Daníel Lúkas Tómasson og fararstjóri var Marzena Maria Kempisty.

Árangurinn var nokkuð góður og tryggði Alicja sér tvö verðlaun, ein silfurverðlaun í 200m skriðsundi þegar hún synti á 2:07.16 og bronsverðlaun í 400m skriðsundi þegar hún synti á tímanum 4:36,42. Auguste bætti sig í 100m bringusundi þegar hún synti á 1:15,75 og varð fimmta og var alveg við sinn besta tíma í 200m bringusundi og 400m fjórsundi.

Alexander Ari varð fimmti í 100m flugsundi aðeins frá sínum besta tíma, hann varð því miður veikur dagana fyrir mót og var því skráður úr sinni bestu grein 200m flugsundi. Hann stóð sig því vel miðað við aðstæður.

Við óskum þessu efnilega sundfólki innilega til hamingju með árangurinn.

Myndir með frétt

Til baka