SH Íslandsmeistarar aldursflokka 2026
Íslandsmeistaramót aldursflokka 2026 fór fram í Vatnaveröld í Reykjanesbæ um helgina. Mótið hófst á föstudagsmorgun og lauk nú rétt eftir hádegi í dag.
Alls tóku 8 lið þátt í mótinu og komu 222 keppendur víðs vegar af landinu og keppt var í aldursflokkum 11 ára og yngri, 12–13 ára og 14–15 ára.
Íslandsmótið er stigakeppni milli félaga og var það Sundfélag Hafnarfjarðar (SH) sem stóð uppi sem sigurvegari að þessu sinni, eftir mjög harða keppni við Íþróttabandalag Reykjanesbæjar, en aðeins skildu 23 stig á milli liðanna. Lið SH sigraði með 748 stigum en ÍRB hlaut 725 stig.
Það var ennþá meiri spenna milli þriðja og fjórða sætisins á mótinu en aðeins skildu 3 stig á milli UMSK og liðs Reykjavíkur, UMSK sigraði með 644 stigum og Reykjavík varð í fjórða sæti með 641 stig.
Það var því annsi mikil spenna og frábær stemmning í Vatnaveröld í dag.
Veitt voru verðlaun fyrir prúðasta lið mótsins og að þessu sinni hlaut Sundfélagið Óðinn þau verðlaun.
Einstaklingsverðlaun – stigahæstu sundmenn mótsins
Að venju voru veitt verðlaun fyrir stigahæstu einstaklinga í aldursflokkum 12–13 ára og 14–15 ára. Stigin eru reiknuð samkvæmt stigatöflu Alþjóðasundsambandsins (WA).
• 14–15 ára stúlkur: Auguste Balciuante (SH) sigraði með 1901 stig fyrir 200m skriðsund, 200m fjórsund og 400m skriðsund.
• 14–15 ára drengir: Jón Ingi Einarsson (Óðni) hlaut 1578 stig fyrir 200m skriðsund, 200m fjórsund og 100m skriðsund.
• 12–13 ára stúlkur: Ásta Þórey Einarsdóttir (SH) sigraði með 1499 stig fyrir 200m skriðsund, 100m fjórsund og 200m fjórsund.
• 12–13 ára drengir: Guðlaugur Santiago Guðlaugson (UMSK) fékk 1229 stig fyrir 200m skriðsund, 100m fjórsund og 400m skriðsund.
Lokastaða í stigakeppni félaga:
1. SH – 748 stig
2. ÍRB – 725 stig
3. UMSK – 644 stig
4. ÍBR – 641 stig
5. Óðinn – 377 stig
6. ÍA – 64 stig
7. UMFB – 38 stig
Glæsilegt mót og hlökkum til næsta árs
Mótið tókst afar vel í alla staði og ÍRB miklar þakkir skildar fyrir frábærar móttökur og gott skipulag yfir helgina.
Á lokahófinu, sem lauk rétt í þessu, var tilkynnt að næsta Íslandsmeistaramót aldursflokka árið 2027 verði haldið í Akureyri 18. – 20 júní – og erum við strax farin að hlakka til.
.jpg?proc=150x150)