Beint á efnisyfirlit síðunnar

Eyleifur Jóhannesson hættir sem yfirmaður landsliðsmála hjá SSÍ.

29.04.2026

Eyleifur Jóhannesson hættir sem yfirmaður landsliðsmála hjá SSÍ.

Að loknum sex ára farsælum ferli sem yfirmaður landsliðsmála hjá Sundsambandi Íslands hefur Eyleifur Jóhannesson ákveðið að segja upp störfum og taka að sér önnur verkefni erlendis.

Uppsögn hans hefur borist skrifstofu SSÍ skriflega og tekur hún gildi frá og með 1. maí nk. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur samkvæmt ráðningarsamningi eru þrír mánuðir.

Okkur hjá SSÍ er efst í huga þakklæti fyrir þann dugnað og fagmennsku sem Eyleifur hefur ætíð sýnt í starfi sínu fyrir SSÍ,  hvort sem er við afreksstarfið eða uppbyggingu til framtíðar. Fjölmargar vísbendingar má sjá um að starfsemi SSÍ sé á réttri leið, en jafnframt er augljóst hve hamlandi ýmsir ytri þættir hafa verið um árabil og eru því miður enn. Eftir að hafa starfað sem yfirþjálfari Sundfélagsins í Álaborg sneri Eyleifur heim til  Íslands sumarið 2020 og tók strax til við að móta, innleiða og fylgja eftir nýrri stefnu fyrir sundhreyfinguna. Meginmarkmiðið var að innan fjögurra ára væri kominn öflugur afrekshópur sundmanna sem kæmi reglulega saman til æfinga undir stjórn Eyleifs. Öll umgjörð skyldi vera jafn fagleg og best gerist í þeim löndum sem við viljum etja kappi við og bera okkur saman við.

Það er mat Eyleifs að þessi metnaðarfulla hugmyndafræði hafi því miður ekki gengið eftir eins og hann hafði vonað. Fyrir því eru sennilega ýmsar ástæður, en SSÍ hefur lengi búið við aðstöðuleysi og átt fjölmarga fundi um þau mál, án árangurs. Þá þarf betra samstarf við skólanna, samhliða fullum stuðningi frá sundhreyfingunni og samfélaginu öllu.

Eyleifur Jóhannesson hefur fyrir löngu skapað sér afbragðs orðspor sem þjálfari bæði innanlands og utan. Það þarf því ekki að koma á óvart að hann telji að nú sé tímabært að fara í afreksþjálfun utan Íslands.

Við hjá SSÍ viljum þakka Eyleifi fyrir hans ríkulega framlag til sundhreyfingarinnar á Íslandi og óskum honum áframhaldandi velfarnaðar í nýju starfi. Það er okkar vilji að þessar breytingar gangi eins vel og mögulegt er fyrir sig og að Eyleifur geti áfram orðið okkur innan handar næstu mánuði eða ár samhliða nýju starfi.

 

 

Til baka