Sunddeild UMFB auglýsir eftir sundþjálfara
Sunddeild UMFB leitar að sundþjálfara fyrir næstast starfsár sem hefst 1. september.
Deildin er í stöðugum vexti og leitum við að öflugum og áhugasömum þjálfara sem er tilbúinn að vinna með okkur.
Ef þú hefur þjálfað eða æft sund áður þá viljum við gjarnan heyra nánar um það. Við hvetjum öll, 18 ára og eldri, til að sækja um.
Starfssvið -
Umsjón með skipulagningu æfinga og móta -
Umsjón með þátttöku í mótum Menntunar- og hæfniskröfur -
Þjálfaramenntun kostur -þekking á Sportabler kostur - Góðir samskiptahæfileikar - Jákvæðni, drifkraftur og frumkvæði - Brennandi ástríða fyrir að setja mark sitt á starfið iðkendum til heilla - Áhugi á að takast á við nýjungar og margvísleg verkefni -
Hreint sakavottorð er skilyrði
Nánari upplýsingar veitir stjórn Sunddeildarinnar sundumfb@gmail.com
