Beint á efnisyfirlit síðunnar

Íslands og unglingameistaramótið í sundi fór fram í Ásvallalaug um síðustu helgi.

31.03.2026

Íslands og unglingameistaramótið í sundi fór fram í Ásvallalaug um síðustu helgi. Mótið er þriggja daga mót og keppt er í undanrásum á morgnana og úrslitum á kvöldin

 

Mótinu lauk með heiðursverðlaunum afhent af forseta Íslands,frú Höllu Tómasdóttur, en hún afhenti Snorra Degi Einarssyni Ásgeirsbikarinn, sem gefinn er í minningu Ásgeirs Ásgeirssonar, fyrrverandi forseta Íslands. Hann fékk bikarinn að þessu sinni fyrir frammistöðu sína í 100m bringusundi, þar sem hann synti á 1:00.94 og fékk fyrir það 813 stig

 

Snorri Dagur hlaut einnig Pétursbikarinn, sem gefinn er í minningu Péturs Kristjánssonar, en Það er fjölskylda Péturs sem veitir bikarinn. Snorri hlaut bikarinn fyrir frammistöðu sína í 100 bringusundi á EM25 í Lublin, Póllandi 2. desember í fyrra.

 

Að lokum hlaut Snæfríður Sól Jórunnardóttir Kolbrúnarbikarinn, fyrir 200 skriðsund sem hún synti á EM25 í Lublin, en bikarinn er farandgripur veittur árlega fyrir besta afrek í kvennaflokki samkvæmt stigatöflu World Aquatics.

 

Eitt Íslandsmet í opnum flokki féll um helgina, en það var karlasveit Sundfélags Hafnarfjarðar sem bættu sitt eigið met í 4x200 skriðsundi á föstudag. Í sveitinni voru þeir Birnir Freyr Hálfdánarsson, Hólmar Grétarsson, Magnús Víðir Jónsson og Ýmir Chatenay Sölvasson. Tími þeirra var 7:37.92, og bættu þeir metið um 3.13 sekúndur sem er virkilega góð bæting.

 

Vala Dís Cicero setti unglingamet í 200 skriðsundi þegar hún synti á 2:01.44, og bætti þar með met Snæfríðar Sól Jórunnardóttu um 4/100, gamla metið var 2:01.82 síðan 2018.

Hólmar Grétarsson setti unglingamet í 400m fjórsundi þegar hann synti á tímanum 4:27,37 og bætti þar með unglingamet Anton Sveins McKee um þrjár sekúndur.

 

Á mótinu um helgina náðu 7 sundmenn  lágmörkum á EM50 sem fram fer í París 10. – 16 ágúst. Þá hafa samtals 9 sundmenn náð lágmörkum á EM50 í sumar en það eru þau:

 

Snorri Dagur Einarsson SH

Birgitta Ingólfsdóttir SH

Vala Dís Cicero SH

Símon Elías Statkevicius SH

Snæfríður Sól Jórunnardóttir Aalborg

Guðmundur Leo Rafnsson ÍRB

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir SH           

Hólmar Grétarsson SH

Birnir Freyr Hálfdánarson SH

 

Fjórir sundmenn náðu lágmörkum inn á Evrópumeistaramót Unglinga, en það fer fram í Munich, Þýskalandi 7. - 12. júlí næstkomandi.

Það voru þau:

Vala Dís Cicero SH

Hólmar Grétarsson SH

S’olveig Freyja Hákonardóttir SH

Karl Björnsson SH

 

Þá náðu þrír sundmenn lágmörkum á Norðurlandanmeistaramót Æskunnar sem fram fer í Osló í sumar.

Það voru þau:

Alicja Julia Kempisty SH

Alexander Ari Andrason Ármann

Auguste Balciunaite SH

 

Við óskum sundfólkinu og þjálfurum þeirra innilega til hamingju með árangurinn, einnig viljum þakka öllum dómurum og sjálfboðaliðum innilega fyrir samveruna og þau ótrúlegu störf sem þau stóðu fyrir um helgina, og hlökkum til að sjá ykkur öll á næsta móti!

 

Til baka